ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

25 mínútur og 23 sekúndur að krakka rafbók

Eiríkur Norðdahl ósáttur við læstar rafbækur
Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is
14:37 › 12. janúar 2012
Eiríkur vildi sýna fram á að afritunarvörnin geri ekkert gagn.

Eiríkur vildi sýna fram á að afritunarvörnin geri ekkert gagn.

Eiríkur Örn Norðdahl gerir rafbækur að umtalsefni á bloggi sínu á Smugunni. Hann er ósáttur við að rafbækur, til dæmis Forlagsins, séu seldar með Adobe-afritunarvörn sem er takmörkuð við fimm lestæki og einungis hægt að nota í tækjum sem styðja aflæsingu slíkra varna. Sjálfur á Eiríkur Kindle sem les ekki rafbækur eins og þessar en notast annars við ólæst formatt.

Eiríkur vildi sýna fram á að afritunarvörnin geri ekkert gagn. Allt eins væri hægt að selja þær án varna og peningarnir og vesenið ekki þess virði. Hann setti því í gang skeiðklukku og „krakkaði“ forritið og að hans sögn tók þetta lögbrot sem hann fúslega gengst við aðeins 25 mínútur og 23 sekúndur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?