ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Skrifar hvorki fyrir Davíð Oddsson né Berlusconi

Hugleikur Dagsson hætti að skrifa fyrir „hægra sorpritið“ Libero
Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is
09:25 › 11. janúar 2012
Hvorki Davíð né Berlusconi.

Hvorki Davíð né Berlusconi. Mynd Róbert Reynisson

Hugleikur Dagsson nýtur mikillar velgengni með myndasögur sínar og selur þær til dagblaða og tímarita víða um heim. Nýlega seldi hann eina myndasögu sína til ítalska dagblaðsins Libero.

Samstarfið var komið af stað þegar Hugleikur frétti af því að dagblað þetta væri álitið áróðursblað Silvios Berlusconi. Hugleikur segist snögglega hafa bundið enda á samstarfið.

„Já, ég hætti eftir eina myndbirtingu,“ segir Hugleikur. „Ég var búinn að semja um ágætis greiðslu við þá og allt. En svo hafði ónefndur kontakt minn á Ítalíu samband við mig og benti mér á að þetta væri afar hægrisinnað sorprit eða eins og hann orðaði það beint: „Libero is simply paper toilet, is a very bad bad poor and nasty attempt to something one could barely recognize as „journalism“.“

Hugleikur segist venjulega ekki fylgja sannfæringu sinni þegar hann fær á annað borð borgað fyrir sína vinnu en honum hafi samt fundist hann þurfa að vera samkvæmur sjálfum sér.

„Ég er ekkert svakalegur prinsipp-maður þegar ég fæ á annað borð borgað fyrir mína vinnu. En fyrst ég þykist of góður fyrir blaðið hans Davíðs Oddssonar hérlendis er fáránlegt að birtast í blaðinu hans Berlusconis þarlendis. Þannig að ég sendi þeim bara ímeil og sagðist hættur við. Þeir voru ekki kátir en virtu engu að síður ákvörðun mína.“

Hugleikur segir það gjarnan gerast að þessari gerð af gríni sé fagnað báðum megin við miðjuna. „South Park er till dæmis vinsælt bæði hjá hörðustu repúblikönum og mýkstu demókrötum.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?