ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Endurprentun bóka er trix

Forleggjarar eru flinkir markaðsmenn
Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is
18:28 › 28. desember 2011
 Endurprentun sýnir eftirspurn. Ef fólk heldur að það sé eftirspurn eftir einhverju þá leitar það ósjálfrátt þangað.

Endurprentun sýnir eftirspurn. Ef fólk heldur að það sé eftirspurn eftir einhverju þá leitar það ósjálfrátt þangað.

Arnaldur Indriðason hefur um langt árabil verið konungur glæpasagnanna og setið efstur á metsölulistum. Um nokkurt skeið hefur þó glæpasagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir náð að selja fleiri eintök af bók sinni, Brakinu. Hún er efst á metsölulista 11.–17. desember, þeim sem Félag bókaútgefenda heldur utan um.
Arnaldur er enn efstur þegar árið er skoðað í heild á þessum tímapunkti. Lokaniðurstaðan er ekki ljós. Sala bóka verður ekki gerð upp fyrr en í janúarmánuði.

Sölulistar þessir voru sagðir ónákvæmir í umræðu í bókmenntaþættinum Kiljunni í síðustu viku og forlögin einnig sögð nota metsöluna í markaðsskyni á ýmsa vegu.
Kristján B. Jónasson, formaður Félags bókaútgefenda, fullyrðir að sölutölurnar séu áreiðanlegar og gefi sterkar vísbendingar um vinsælustu bækur hvers árs. Þær séu þó ekki hárnákvæmar.

„Það er Rannsóknarsetur verslunarinnar sem annast söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda. Sama stofnun og vinnur neysluverðsvísitöluna. Það er ákveðið kerfi og skipulag á því hvernig tölum er skilað til þeirra. Það hefur enginn efast um þetta skipulag þeirra hingað til,“ segir Kristján. „Bóksölulistinn hefur verið birtur á tveggja vikna fresti og allt árið utan desember og janúar fær hann nánast enga athygli eða umfjöllun fjölmiðla. Í jólabókaflóðinu vakna þó alltaf upp umræður um þessar tölur og sitt sýnist hverjum. Þetta er einfalt ferli. Listinn mælir sölu íslenskra bóka og er byggður á upplýsingum frá flestum bóksölum landsins, dagvöruverslunum og öðrum verslunum sem selja bækur og listinn verður marktækari eftir því sem nær dregur jólum.“

Endurprentun er gott trix
Eftir því sem Yrsa hefur færst ofar á metsölulistanum færist meiri hiti í umræður um bækur þessara tveggja metsöluhöfunda. Þetta þykir spennandi slagur og gæði bókanna eru borin saman. Mikið er birt af auglýsingum og flestar þeirra eiga við metsölubækur og þær sem fá góða umfjöllun. Aðrar bækur eru lítið sem ekkert auglýstar.

Sverrir Björnsson, hönnunar- og viðskiptaráðgjafi hjá Hvíta húsinu, segir það einföld sannindi að forlögin veðji á það sem best gengur. Markaðsstarf virkar og menn veðja á fljótustu hestana, segir Sverrir. „Forleggjarar eru margir hverjir afar flinkir markaðsmenn og dæmi um gott trix er að auglýsa endurprentanir sérstaklega. Endurprentun sýnir eftirspurn. Ef fólk heldur að það sé eftirspurn eftir einhverju þá leitar það ósjálfrátt þangað. Frægt er dæmið af kaupmanninum sem seldi lítið af ákveðinni vöru, þangað til hann festi upp skilti við vöruna sem á stóð: Aðeins tveir á mann!“ segir Sverrir og hlær.
Hann nefnir að þegar jólabókaflóðið standi sem hæst séu þeir margir sem týnist. „Margar góðar bækur týnast í flóðinu. Ég get nefnt Farandskugga, bók Úlfars Þormóðssonar. Frábæra bók sem hefur ekkert markaðsfé á bak við sig. Þessi bók fer þá á orðspori, sem getur reyndar orðið mjög sterkt.“

Eftirtektarverðastar fundust Sverri auglýsingar um hljóðbækur Yrsu. „Þetta er fyrsta auglýsingaherferðin þar sem hljóðbók er auglýst og Yrsa var þarna í forgrunni. Komin upp í rúm með lesandanum með eigin rödd. Hún hefur vissulega verið áberandi í flóðinu í ár. Þessi aukna sala raf- og hljóðbóka var mikið rædd á bókamessunni í Frankfurt í ár og er spennandi þróun.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?