ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Ánetjandi leikur

Skyrim: Af næstu kynslóð tölvuleikja
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:16 › 12. desember 2011
Skyrim

Skyrim: Elder Scrolls
X360, PS3, PC og DS
1. persónu hlutverkaleikur


Margir biðu leiksins Skyrim, með mikilli eftirvæntingu. Fljótlega eftir útgáfu leiksins fór að bera á stóryrtum umsögnum: Brotið blað í leikjasögunni! Farið út fyrir kassann! Næsta kynslóð tölvuleikja! Allar umsagnirnar með upphrópunarmerkinu áföstu.

Eftir tveggja vikna spilun leiksins má vel taka undir þessar jákvæðu og innblásnu umsagnir. Þessi leikur er ótrúlegur, grafíkin er með ólíkindum, náttúruhljóðin sem fylgja falleg og tónlistin truflar ekki leikinn á minnsta hátt. Mun minna um uppáþrengjandi samtöl vegfarenda en í fyrri leikjum frá Bethesda og sagan er ánetjandi og heldur spilurum vel föstum við efnið.

Leikurinn er reyndar svo ánetjandi að þótt að hann sé unnin og komist á leiðarenda er ómögulegt að hætta að spila hann. Það er
hægt að fara endalaust til baka því dýpt leiksins er mikil. Það má spila hann á ótal mismunandi vegu. Bara við það að skipta um aðalsöguhetju sem hefur aðra eiginleika breytist leikurinn umtalsvert. Þá er eftirtektarverð gagnvirkni í leiknum. Um leið og söguhetjan gengur um bregst umhverfið við og taka eftir henni án þess að hún þurfi að ganga alveg upp að þeim. Nokkuð merkilegt atriði í hönnun leiksins. Leikurinn er að sama skapi aldrei eins, og í þessum leik eru einnig mun fleiri minni leiðangrar en í þeim fyrri.

Í stuttu máli er leikurinn afar vel heppnaður og á skilið allt það lof sem hann hefur fengið. Bethesda hefur tekist að skapa eftirminnilegan leik með djúpum og vel ofnum söguþræði. Örlitlir hnökrar á leiknum hafa ekki teljandi áhrif á spilun. Það má mæla með þessum leik fyrir alla sem hafa þörf fyrir að flýja raunveruleikann um stund. Leikurinn er hins vegar ekki fyrir fólk í tímaþröng því hann er krefjandi, ánetjandi og svo skemmtilegur að ef ekki er nægur tími til þess að spila hann er líklegt að spilarinn eigi nokkrar spillandi andvökunætur.

Jonathan Devaney



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?