ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Gömul en góð formúla

Call of Duty: Modern Warfare 3
09:16 › 22. nóvember 2011
Call of Duty: Modern Warfare 3

Call of Duty: Modern Warfare 3
Fyrstu persónu skotleikur
X360, PS3, PC og DS


Því verður ekki leynt að ég hafði beðið útgáfu Call of Duty: Modern Warfare 3 (MW3) með mikilli eftirvæntingu. Þær vikur (já, vikur!) sem fóru í spilun Call of Duty: Black Ops á netinu koma aldrei aftur. En mér er alveg sama. Leikurinn var frábær og vonaði ég innilega að MW3 yrði jafn öflugur.
Einspilun (e. campaign) leiksins hefst á sama stað og Modern Warfare 2 endaði og ertu í baráttu við Rússana sem eru á góðri leið með að leggja undir sig Bandaríkin og Evrópu. Þessi hluti leiksins er einstaklega vel heppnaður að flestu leyti. Grafíkin er frábær, hljóðið óaðfinnanlegt og sagan rígheldur í mann. Bardagarnir eru nánast allir stórbrotnir og verkefnin fjölbreytt. Einspilunin er þó helst til stutt og tók það einungis um fimm klukkustundir að klára hana.
Hjarta leiksins er sem fyrr netspilunin (e. multiplayer). Þar hafa verið gerðar nokkrar ágætlega heppnaðar breytingar. Ber þar helst að nefna Killstreak-kerfið sem hefur verið tekið rækilega í gegn. Þá er kominn nýr spilunarmöguleiki, Kill Confirmed, sem er svipaður og Team Deathmatch. Þar þarftu að ná í svokallað Dog Tag af hverjum sem þú drepur til að fá stig. Þetta er ansi hressandi enda eru flestir á fullri ferð á meðan á leik stendur. Leyniskyttur eru því tiltölulega sjaldséðar – sem er gott. Þriðji möguleikinn er svo Co-op, þar sem þú getur barist við óvinaöldur með félaga, til dæmis í gegnum netið.
Leikurinn er að flestu leyti vel heppnaður. Framleiðendur hans, Activision, virðast þó hafa ákveðið að fara öruggu leiðina enda svipar leiknum mjög til MW2. Það er því ekki beinlínis verið að finna upp hjólið í MW3. Hér er verið að fara eftir formúlu sem hefur reynst vel. MW3 er fínasta skemmtun þó vikurnar sem munu fara í þennan leik verði eflaust færri en fóru í Black Ops.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?