ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Þú munt gapa af undrun

Tölvuleikurinn Uncharted 3 fær toppdóm
09:26 › 2. nóvember 2011
Uncharted 3: Drake's Deception

Hasarleikur
Spilast á PS3


Hér er á ferðinni þriðji leikurinn í hinni mögnuðu Uncharted-seríu og sem fyrr ertu í hlutverki ævintýramannsins Nathans Drake. Án þess að fara of djúpt ofan í söguþráðinn er Drake ásamt hinum hundtrygga læriföður sínum, Sully, í leit að týndu borginni Iram of the Pillars. Sem fyrr þarf Drake að ferðast um víða veröld og lendir hann í ófáum ævintýrum á ferð sinni.

Það er óhætt að fullyrða að undirritaður hefur sjaldan eða aldrei spilað leik sem lítur jafn vel út og þessi. Allt umhverfi er eins og best verður á kosið og þegar þú spilar leikinn munu koma augnablik þar sem þú gapir af undrun yfir umhverfinu. Í þessum nýja leik er líka búið að taka slagsmálin í gegn og eru núna mun fleiri möguleikar í boði en til dæmis í Uncharted 2: Among Thieves. Það er orðið gaman að slást.

Þetta allt þýðir þó ekki að leikurinn sé með öllu gallalaus – þótt flottur sé.

Gervigreindin er á köflum heldur klunnaleg og þá sérstaklega þegar Drake þarf að taka upp byssu og skiptast á skotum við óvini. Óvinirnir bera sig oft heldur klaufalega að og finnst manni upplifunin vera örlítið gamaldags.

Mér reiknast til að það hafi tekið mig um tólf tíma að klára leikinn, eða þrjú góð kvöld. Einhverjum kann að þykja það stutt en netspilun mun þá koma að góðu gagni fyrir þá sem vilja halda áfram að spila.

Sagan, sögupersónurnar og umhverfið í leiknum gerast ekki betri. Leikurinn er í raun eins og fantagóð bíómynd þar sem spenna, drama og húmor tvinnast saman í nánast fullkomna upplifun.

Það vantar sáralítið upp á að leikurinn geti talist með bestu leikjum allra tíma. Hann hefur allt til brunns að bera en örlítið vantar upp á til að gera leikinn fullkominn. Uncharted 3: Drake‘s Deception er í raun eins og óslípaður demantur sem óhætt er að mæla með fyrir alla tölvuleikjaunnendur.

Einar Þór Sigurðsson



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?