ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

FIFA hinn fullkomni

Fótboltaleikurinn FIFA 12 dæmdur
09:13 › 6. október 2011
FIFA 12

Fótboltaleikur
Útgefandi: EA Sports
Spilast á: PS3, Xbox 360, Wii, PS2, Windows, Mac OSX ofl.
GameRankings: 90%
Metacritic: 92


Oft þarf ekki að breyta öllu til að gjörbylta hlutunum. EA Sports tók áhættuna og þeim tókst óaðfinnanlega vel upp í FIFA 12. Það fyrsta sem þú munt taka eftir eru breytingarnar á varnarleiknum. Svo byltingakennd er nýjungin að þú þarft að klára sérstaka varnaræfingu fyrst þegar þú spilar leikinn.

Þar er þér kennt á nýja kerfið og nýju takkana. Áður gat einn leikmaður séð um varnarleikinn, þú gast haldið inni tæklingartakkanum og sóknarmaðurinn var eltur uppi og boltinn var unninn. Nú þarftu að tímasetja hverja tæklingu betur og þolinmæði í vörninni er lykilatriði.

Liðið þarf líka að verjast sem heild. Þú þarf aðstoð frá liðsfélögunum til að pressa, halda og láta svo til skarar skríða á hárréttu augnabliki eða þvinga sóknarmanninn til að gera mistök. Breytingin tók á FIFA-risaeðlu eins og mig. Þú munt vera eins og fífl í vörninni fyrst um sinn, tæklandi um allar trissur út í bláinn og munt fá á þig ósköpin öll af heimskulegum byrjendamörkum. En þetta kemur.

Það sem gerir varnarleikinn enn erfiðari er tilkoma „Precision dibbling.“ Það er sagt á hverju ári að knattrakið hafi verið tekið í gegn en nú finnur þú það í fingurgómunum hversu mikið vald þú hefur á minnstu hreyfingu hvers leikmanns. Það er auðveldara að fara fram hjá mönnum og öll trixin virka mun betur til að sóla menn, enda allir enn að venjast nýja varnarkerfinu.

Takist varnarmanninum að stoppa þig kemur þriðja nýjungin við sögu; sem EA kallar „Player Impact“ og snýr að árekstrum leikmanna á vellinum. Nú detta menn í samræmi við höggið/tæklinguna sem þeir fá á sig og hefur meðal annars áhrif á meiðslin sem leikmenn verða fyrir. Einstaklega svalt.

Raunveruleikinn er óviðjafnanlegur í FIFA 12 og er þessi upptalning hvergi nærri tæmandi. Það er búið að pússa grafíkina, spilunina og bæta við ótal nýjungum sem gera leikinn dýpri og fullkomnari en nokkru sinni fyrr. Þú mátt ekki missa af FIFA 12. Það er bara þannig. Árlegar útgáfur geta orðið þreyttar en EA hefur tekið stærsta stökk fram á við í manna minnum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?