
Þó að enn sé ekki útséð með hvort nokkuð verði spilað í NBA-deildinni í vetur geta aðdáendur bandaríska körfuboltans svalað þorstanum með NBA 2K12.
Meðal nýjunga í leiknum er svokallað „NBA Greatest Mode“. Þar geturðu farið aftur í tímann og spilað með liðum sem gerðu NBA-körfuboltann að einni vinsælustu íþrótt heims. Þú getur valið á milli 15 leikmanna, til dæmis Michael Jordan, og sem dæmi spilað sem Chicago Bulls-liðið frá 1992. Þá geturðu farið lengra aftur í tímann og spilað goðsagnakennda leiki með liðum Wilts Chamberlain, Kareem Abdul Jabbar og Larry Bird sem dæmi. Öll einkenni þessara leikmanna eru í leiknum, til dæmis geturðu tekið sveifluskotið fræga með Jabbar.
„My Player Mode“, þar sem þú býrð til þinn eigin leikmann og fylgir í atvinnumennsku, er á sínum stað en með örlítið breyttu sniði frá því í fyrra. Þú þarft að vinna þér inn stig með frammistöðu þinni til að geta bætt þig. Þessi hluti leiksins getur verið þreytandi, sérstaklega ef þú færð fáar mínútur í hverjum leik. Þá eru stigin dýr og það getur tekið mjög langan tíma að bæta sig. „Creating a Legend Mode“ er enn annar möguleikinn. Hann er svipaður „My Player Mode“ nema að þá velurðu að spila sem ákveðinn leikmaður í deildinni.
Spilun leiksins er frábær og í fljótu bragði er afar fáa galla að sjá. Stundum virðist tölvan þó hafa ákveðið forskot því ennþá eru leikmenn að verja skot með því að snúa baki í þig. Grafíkin er þó frábær og augljóst að mikið hefur verið unnið með hreyfingar leikmanna. Þær eru mjög raunverulegar. Leikurinn er ekki beint auðveldur og hafirðu ekki spilað forvera leiksins, NBA 2K11, máttu búast við að eiga í erfiðleikum til að byrja með. Möguleikarnir í spiluninni eru endalausir (gabbhreyfingar, spil, skot) en þegar þú hefur náð tökum á þeim verður þetta auðveldara og um leið skemmtilegra. NBA 2K12 er kóngurinn í körfuboltaleikjum og ætti auðveldlega að geta svalað þorsta þeirra sem koma til með að sakna NBA-deildarinnar í vetur. Hér er allt í toppstandi og ekkert verkfall.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fanfest í Hörpu
Ánetjandi leikur
Gömul en góð formúla
Þú munt gapa af undrun
FIFA hinn fullkomni
