Darksiders
Darksiders
Ævintýraleikur
Xbox 360/PS3
Leikurinn Darksiders er ein af fyrstu stóru útgáfum ársins. Og vá hvað 2010, sem ku vera ár margra skuggalegra leikja, byrjar vel. Leikmenn fara í hlutverk War, sem er einn af fjórum hestamönnum heimsendis (horseman of apocalypse.) En þeir gæta þess að góðu öflin og vondu öflin fara ekki yfir strikið, í baráttu sinni og eru þar af leiðandi æðri en bæði guð og djöfullinn.
Líður nú og bíður, einhver leiðinda atburðarás fer í gang, War er sviptur hæfileikum sínum og hlutum og sendur aftur til jarðarinnar til að kippa málunum í lag, upp á von og óvon. Birtast svo hinir ýmsu skrattar og djöflar út leikinn og allt í gangi.
Darksiders er svaðalega góður leikur. Hann minnir helst á God of War, með dassi af Zeldu og mögulega Devil May Cry. Hasaratriðin eru ótrúleg, en eins og í öllum svona leikjum eiga þau það til að endurtaka sig, en hér er það bætt upp með rosalegum endaköllum sem er hrein dásemd að berjast við. Þrautir leiksins geta oft verið snúnar, en lausnir þeirra eru konfekt á fingurgómum mínum. Svo er það eitt sem Darksiders hefur fram yfir aðra leiki og það er að cut-atriðin eru ekki hallærisleg. Í sumum atriðum rísa hárin á hnakkanum á manni og fyrr en varir gaggar maður um eins og gæs.
Það skín í gegn að mennirnir sem gerðu leikinn elska tölvuleikjaformið og finnst fátt skemmtilegra en að gera leiki. Það er þessi gleði, sköpunargleði sem skín í gegnum allan leikinn og henni ber að fagna. Vonandi fylgja fleiri slíkir leikir í kjölfarið, en þangað til býður Darksiders upp á næga valmöguleika. Húrra.
Dóri DNA


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013