ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Leikhús sem á erindi

Jón Viðar Jónsson leikminjar@akademia.is
18:19 › 7. febrúar 2010
Munaðarlaus

Leikflokkur undir stjórn Vignis Rafn Valþórssonar leikara hefur að undanförnu sýnt splunkunýtt breskt leikrit í Norræna húsinu. Það nefnist Orphans á frummálinu, Munaðarlaus í þýðingu Vignis Rafns. Eftir því sem lesa má í leikskrá sýningarinnar byrjaði höfundurinn, Denis Kelly, fremur seint að skrifa leikrit: hann er fæddur árið 1970 og sendi fyrsta leikritið frá sér fyrir sex árum, en hefur síðan skrifað tíu verk og er Orphans þeirra nýjast, frumsýnt á Edinborgarhátíðinni síðastliðið sumar.

Ég þekkti ekkert til skáldsins fyrir, en eftir þessu verki að dæma er Denis sannarlega höfundur sem vert er að fylgjast með. Orphans er átakaverk með að heita má klassísku sniði: einn staður, ein atburðarás, einn tími. Persónur aðeins þrjár. Ofbeldisverkið sem unnið er á sér stað utansviðs, við kynnumst því aðeins í gegnum frásagnir og viðbrögð persónanna; sjáum hvernig það leggur líf þeirra í rúst á fáeinum klukkutímum.

Auðvitað verður það miklu áhrifameira en að láta viðbjóðinn fara fram fyrir augum okkar með leikhúsblóði og tilheyrandi; það er gömul saga sem þessi sýning staðfestir enn og aftur. Og um leið fæst skýrari fókus á þær siðferðisspurningar sem þarna er brotið upp á: um tilviljunarkennt ofbeldið í samfélaginu sem alltaf á sér að einhverju leyti rætur og hliðstæður í ofbeldinu sem fólk beitir hvert annað í einkalífinu, jafnt í skólunum sem innan veggja heimilisins.

Leikur þeirra Hannesar Óla Ágústssonar, Stefáns Benedikts Vilhelmssonar og Tinnu Lindar Gunnarsdóttur var mjög góður, hraður og öruggur, og það fór ágætlega um leikinn í kassanum sem byggður hafði verið utan um hann í sal Norræna hússins. Þau munu vera á leið með sýninguna til Akureyrar þar sem hún fær vonandi þá aðsókn sem hún á skilið.

Jón Viðar Jónsson



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?