ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Þú ræður ferðinni

13:06 › 25. febrúar 2010
Heavy Rain

Heavy Rain
Ævintýraleikur
PS3

Það hafa ófáir beðið eftir Heavy Rain með mikilli eftirvæntingu enda hafa gagnrýnendur keppst við að fara lofsamlegum orðum um leikinn. Það verður þó að viðurkennast að undirritaður var fullur efasemda þegar hann fékk leikinn í hendurnar. Það er kannski ekki síst vegna þess að fyrirtækið sem framleiðir leikinn er franskt og hefur ekki verið áberandi á tölvuleikjamarkaðnum á undanförnum árum. Þegar spilun leiksins hófst voru efasemdaraddirnar þó fljótar að kafna í ævintýralegum söguþræði sem nær tökum á þér frá byrjun.

Í Heavy Rain seturðu þig í hlutverk fjögurra persóna sem eru með mjög svo ólíkan bakgrunn. Þær eiga það þó allar sameiginlegt að vera að elta raðmorðingja sem gengur undir nafninu The Origami Killer. Aðeins fjórir dagar eru til stefnu áður en næsta fórnarlamb morðingjans lætur lífið og elta sögupersónurnar eigin vísbendingar í gegnum leikinn.

Heavy Rain er einstakur að því leyti að þú ræður algjörlega ferðinni og skapar í raun örlög þeirrar persónu sem þú ert hverju sinni. Það sem þú segir og þær ákvarðanir sem þú tekur hverju sinni geta því haft áhrif á framvindu leiksins. Þetta kann að hljóma flókið en er það alls ekki. Spilun leiksins er tiltölulega einföld; þú færð að vita nákvæmlega hvað á að gera á hverjum stað fyrir sig og þarft aldrei að pirra þig á því að vera fastur.

Grafíkin og hljóðið í Heavy Rain eru til fyrirmyndar og óþarfi að fara of mörgum orðum um þá þætti.
En þó að leikurinn sé að mestu gallalaus getur stjórnun hans á köflum verið flókin og hálfpirrandi. Þú notar R2 til að ganga áfram og við vissar aðstæður krefst leikurinn þess að þú haldir inni býsna mörgum tökkum í einu. Það getur verið pirrandi á köflum, sérstaklega þegar manni tekst illa til. Annar galli við stjórnun hans er sá að þegar þú gengur á hluti; stól, borð, annað fólk, á sögupersónan það til að snúa skyndilega við.

Undirritaður hefur aldrei spilað tölvuleik sem nær jafngóðum tengslum við þann sem spilar hann. Þú kynnist sögupersónunum vel og stendur aldrei á sama um örlög þeirra. Að því leytinu til er Heavy Rain eins og góð bíómynd en það er ekki til sú bíómynd þar sem þú getur haft áhrif á atburðarásina.
Það er hægt að mæla með Heavy Rain við alla þá sem vilja upplifa eitthvað öðruvísi. Þetta er ekki dæmigerður skotleikur og ekki dæmigerður hlutverkaleikur. Heavy Rain er leikur þar sem þú ræður algjörlega ferðinni og er þeim kostur gæddur að þú getur spilað hann aftur og fengið annan endi en þegar þú spilaðir hann fyrst. Heavy Rain er upplifun sem óhætt er að mæla með.

Einar Þór Sigurðsson



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?