ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Frábær fjölskylduskemmtun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:12 › 27. nóvember 2008
Tónleikarnir GilliGill

Á grámyglulegum kreppusunnudegi dreif ég mig af stað með frændsystkini mín tvö, fjögurra ára og níu ára, á GilliGill tónleika í Salnum. Í síðasta mánuði kom út platan Gilligill með textum eftir Braga Valdimar Skúlason í flutningi Memfismafíunnar og margra þjóðþekktra söngvara.

Þó platan sé barnaplata er hún ekki síður skemmtileg fyrir okkur fullorðna fólkið og var ég því álíka spennt fyrir tónleikunum og spariklæddu frændsystkinin mín. Tónleikarnir hófust stundvíslega klukkan þrjú. Á sviðinu hafði þá komið sér fyrir heil Memfismafía í litríkum grímubúningum, Ragnheiður Gröndal í þjóðlegum síðkjól, Magga Stína (sem örugglega lánaði öllum hinum á sviðinu þessi litríku föt sem hún lumaði á í fataskápnum) með blómakransa í appelsínugulum sokkabuxum og Egill Ólafsson í skærlitri skyrtu með hatt. Á bak við þetta gríðarlega hressa tónlistarfólk rúlluðu svo fagrar og skemmtilegar myndir úr plötuumslaginu, teiknaðar af Karítas Pálsdóttur. Allt þetta náði svo sannarlega strax athygli barnanna.

Egill Ólafsson var í hlutverki eins konar hljómsveitarstjóra og lék á als oddi. Í upphafi sagði hann börnunum að í lok tónleikanna fengju þau að gera svolítið sem væri undir öllum öðrum kringumstæðum stranglega bannað að gera á tónleikum, sem byggði upp mikla spennu. Spurði börnin og foreldrana spurninga á milli atriða og fékk nokkur börn upp á svið með sér. Salurinn í Kópavogi er ekki stór og það myndaðist heimilisleg og hugguleg stemning á tónleikunum. Börnin voru óhrædd við að kalla spurningar og athugasemdir til Egils inn á milli þess sem þau fylgdust dolfallin með æðislegum lögunum.

Eins og áður sagði eru lögin ekki síður skemmtileg fyrir okkur fullorðna fólkið með ýmiss konar bráðsmellnum athugasemdum í textunum enda húmorinn í fyrirrúmi á GilliGill.
Magga Stína fór á kostum og hoppaði og skoppaði um sviðið eins og henni einni er lagið. Ragnheiður Gröndal stóð sig líka með prýði en þetta var henni ekki alveg jafneðlislægt og Möggu Stínu. Í rauninni þarf ekki að hafa neinar málalengingar um það hvernig hver og einn flytjandi stóð sig því í heildina voru þau stórskemmtileg. Það skein líka í gegn hvað hópurinn skemmti sér vel á sviðinu sem skilar sér jú alltaf til áhorfandans.

Í lokalaginu, GilliGill, kom svo að þessu óvænta sem Egill hafði lofað börnunum að fá að gera í upphafi sem vakti mikla lukku. Ég ætla samt ekki að segja frá því hér heldur hvet ég alla foreldra, ömmur og afa og jafnvel frændsystkini að sleppa því að eyða peningum í rándýra sunnudagssteik og skella sér frekar með börnin á GilliGill og fá sér bara klinktilboð á McDonalds í kvöldmatinn. Miðaverð er ekki nema fimmtán hundruð krónur og hefjast tónleikarnir klukkan þrjú á hverjum sunnudegi fram að jólum.

Krista Hall



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?