ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Fossar og fegurð í Höllinni

08:30 › 27. nóvember 2008
Tónleikar Sigur Rósar

Það var mikið sjónarspil sem áhorfendur á tónleikum Sigur Rósar upplifðu í Laugardalshöllinni síðasta sunnudagskvöld. Það er engum blöðum um það að fletta að aðdáendahópur Sigur Rósar er stór hér á landi og urðu viðstaddir ekki fyrir neinum vonbrigðum með niðurstöðuna. Strákarnir virtust vera fullir af orku þrátt fyrir að þetta væri lokahnykkurinn í tónleikaferð þeirra sem staðið hefur yfir síðan í júní.

Undirritaður mætti á svæðið um það leyti sem upphitunarhljómsveitin For A Minor Reflection byrjaði að spila. Eftir að hafa horft á sveitina spila varð manni ljóst að þarna fer ekki einungis efnileg hljómsveit heldur hljómsveit sem, miðað við gæðin, gæti orðið næsta útflutningsvara okkar Íslendinga. Sigur Rós mætti síðan á sviðið klukkan 21 en tónleikarnir sjálfir byrjuðu klukkan 20. Viðstaddir þurftu því ekki að bíða óþægilega lengi eftir að For A Minor Reflection hafði lokið sér af, þó biðin hafi verið rúmar tuttugu mínútur.

Sigur Rós spilaði öll sín bestu lög. Þar var úr vöndu að velja þar sem lög Sigur Rósar eru flest hvert öðru betra. Eins og áður segir voru tónleikarnir mikið sjónarspil. Strákarnir nýttu sér Laugardalshöllina til hins ýtrasta. Meðal annars birtist risastór foss sem skildi að tónleikagesti og sviðið í tveimur lögum. Á fossinn var varpað myndum af meðlimum sveitarinnar og allt var gert til að gera umgjörðina hina glæsilegustu. Þetta var meðal annars gert í lokalaginu, „Popplaginu“, af plötunni ( ). Frábærri tveggja tíma dagskrá var lokið og hurfu tónleikagestir sáttir út í myrkrið og kuldann þetta nóvemberkvöld.

Einar Þór Sigurðsson



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?