ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Stanslaust stuð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:32 › 10. nóvember 2008
Útgáfutónleikar Páls Óskars Hjálmtýssonar

Fólk sem gekk um miðbæinn á laugardagskvöldið velti því örugglega fyrir sér af hverju búið væri að flytja Friðarsúluna í miðbæinn.

Friðarsúlan var enn á sínum stað, en Austurvöllur hafði tekið stakkaskiptum fyrir útgáfutónleika Páls Óskars Hjálmtýssonar. Hann sýndi það og sannaði um helgina að hann er okkar eina alvöru poppstjarna. Nýjasta breiðskífa hans, Silfursafnið, kom út á dögunum og samanstendur af remixum af öllum hans bestu plötum.

En það var ekki bara Páll Óskar sem fagnaði á laugardagskvöldið heldur hélt tónleikastaðurinn NASA einnig upp á sjö ára afmæli sitt og var því umgjörð tónleikanna með glæsilegasta móti. Búið var að hengja upp nokkrar risastórar diskókúlur fyrir utan NASA sem lýstu upp Austurvöll og gamla Símahúsið, en hápunkturinn var þó Hollywood-ljósið sem skein skært og minnti óneitanlega mikið á Friðarsúlu Yoko Ono nú eða Batman-merkið.

Eins og Páli Óskari einum er lagið spilaði hann pásulaust frá klukkan ellefu til klukkan að ganga sex um morguninn. Hann hóf leikinn sem plötusnúður í rosalegu ljósadiskóbúri í ennþá rosalegri silfurdiskójakkafötum. Hann spilaði klassíska diskóslagara og klúbbatónlist sem fékk alla til að dilla sér og hitaði mannskapinn vel upp fyrir tónleikana sína sem hófust klukkan rúmlega hálf tvö.
Skömmu áður hafði Palli skellt á Abba-syrpu sem tryllti lýðinn enda hrikalegt Abba-æði sem hefur gripið landann að undanförnu. Meðan Dancing Queen og Waterloo rúlluðu í græjunum nýtti Palli tímann í að skipta úr silfurjakkafötunum í ekki síðra dress, skærbleika spandex-skyrtu og bleikar útvíðar glimmerbuxur í stíl.

Um þetta leyti var NASA orðið stútfullt af Pallaaðdáendum á öllum aldri. Bæði ungum og nýjum aðdáendum sem uppgötvuðu hann eftir að hann sendi frá sér Allt fyrir ástina á síðasta ári, sem og eldri og tryggari aðdáendum sem eflaust hafa ekki haldið partí síðustu fimmtán árin án þess að spila allavega Ljúfa líf og Stanslaust stuð áður en haldið er í bæinn.

Palli hóf leikinn á laginu Betra líf sem maður er farinn að tengja aðeins of mikið við Byr eftir að lagið var notað í auglýsingaherferð en það virtist ekki trufla aðdáendur sem trylltust úr gleði þegar söngvarinn sjarmerandi var kominn með míkrófóninn í höndina. Því næst tók hann Þú komst við hjartað í mér og allir sungu með. Koll af kolli tók Palli nýtt efni í bland við gamalt og gott og skipti litlu hvort hann var að syngja Ljúfa líf eða Allt fyrir ástina, stemningin á NASA var gríðarlega góð allan tímann. Dansgólfið var gjörsamlega stappað og þeir sem ekki komust fyrir þar dönsuðu uppi á hliðarpöllunum, stólum og borðum. Palli söng í um fjörutíu mínútur áður en hann fór aftur í hlutverk plötusnúðsins ógurlega og hélt áfram að skemmta gestum fram á morgun.

Umgjörð tónleikanna var ekki síðri en anddyri NASA. Skrauti rigndi yfir tónleikagesti á dansgólfinu á meðan tónleikarnir stóðu og ærðist hópurinn í hvert sinn. Einnig var Páll með tvo dansara uppi á sviði með sér og pössuðu þeir upp á að allir væru að dansa sinn villtasta dans.

Að venju skilaði Palli sínu vel enda þekktur fyrir að framkvæma hlutina ekki í hálfkæringi og við efumst ekki um að allir sem mættir voru á NASA þetta kvöldið til að upplifa alvöru Palla-ball hafi labbað út með bros á vör.

Hanna Eiríksdóttir og Krista Hall



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?