„Ég hef alla tíð verið mikil áhugamanneskja um allt sem við kemur mat. Allt frá því að spá í hvaðan hráefnið kemur, hvernig það er framleitt, matreitt og hvaða næringu það gefur,“ segir Ingibjörg Egilsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning og athafnakona.
Það er unun fyrir matgæðinga að fylgja Ingibjörgu á Instagram þar sem hún er dugleg að leyfa fylgjendum að fylgjast með matseld sinni og kokkar hún upp alls kyns dýrindisrétti eins og ekkert sér, enda ástríðukokkur að eigin sögn.
https://www.instagram.com/p/BZcQCrenxb0/
„Fyrir mér er matur og matargerð mikil ástríða. Fyrir mér er upplifun að borða góðan og rétt samsettan mat. Ég legg mikið upp úr því að velja gott hráefni og ferskt grænmeti. Ég er dugleg að byrja daginn á því að matreiða næringarríkan mat og legg oftast upp úr því að maturinn sé settur fram í fallegum búning og smekklega borinn fram. Mér finnst alltaf betra að vakna aðeins fyrr og ná að búa til fallega, litríka máltíð á meðan ég sötra morgunbollann.“
Það stendur ekki á svörunum þegar að Ingibjörg er spurð hvort hún sé betri í að elda eða baka.
„Ég er án efa betri í því að elda þó svo að ég geri mikið af hvoru tveggja. Ég er mjög hrifin af hráfæðikökum en þær eru ekki eldaðar.“
En hver ætli huggunarmatur fegurðardísinnar sé?
„Ætli það sé ekki bara Nammiland. Það er smá veikleiki hjá mér. Omnom súkkulaðið er einnig í sérstöku uppáhaldi. Ég þreytist bara ekki á þessu með lakkrísnum,“ segir Ingibjörg. Þegar kemur að besta mat sem hún hafi smakkað á ævinni er hún ekki í neinum vafa.
https://www.instagram.com/p/BYTq122nnJ-/
„Það besta sem ég fæ og elda er villibráð. Rétt matreitt hreindýrakjöt. Það toppar það ekkert.“
Ingibjörg er alæta á mat að eigin sögn og hefur aldrei upplifað að borða mat sem henni þykir ógeðslegur. Það er þó einn réttur sem hún hefur smakkað sem henni fannst frekar skringilegur.
„Ég pantaði mér krókódíl þegar ég var á Kúbu, það var svolítið sérstakt. Sér í lagi fyrir þær sakir að kjötið var soðið og ofeldað.“
Ingibjörg segist ekki fylgja neinum sérstökum matarkúrum eða „öfgafullum matarvenjum“.
„Ég tileinka mér það að velja fjölbreytta og næringarríka fæðu. Á okkar heimili erum við með fisk úr Hafinu allavegana tvisvar í viku og þá fær sonur minn að velja sér rétt úr borðinu hjá þeim. Föstudagar eru pítsudagar og á sunnudögum erum við alltaf með lambalæri. Ég vel fæðu dagsins með tilliti til þess að fá nægan skammt af próteini, kolvetnum og fitu. Ég tek svo inn trefjar og fjölvítamín og á veturna eyk ég skammtinn af D-vítamíni og tek inn skot af engifer daglega,“ segir Ingibjörg, og er því ekki lengi að hugsa um hvaða rétt hún myndi velja ef hún gæti bara borðað einn rétt til æviloka.
https://www.instagram.com/p/BW6-y7bH3xs/
„Val mitt þyrfti auðvitað að byggjast á því að sá réttur myndi innihalda þau næringarefni og þær lífsnauðsynlegu amínósýrur sem við þurfum á að halda. Ætli ég myndi ekki setja saman lax, hýðishrísgrjón, sæta kartöflu, salat með bæði grænmeti, ávöxtum og fræjum og svo sósu sem innihéldi bæði egg og mjólk.“
Við getum svo ekki sleppt þessari kjarnakonu án þess að fá uppskrift að hráfæðisköku úr smiðju hennar, en hún er dugleg að búa til slíkar kökur á Instagram-sögu sinni.
„Ein af mínum allra uppáhalds hráfæðikökum er Snickers kaka. Þessi kaka er tilvalin sem eftirréttur, í saumaklúbbinn eða sem millimál þar sem hún er orkumikil og einnig stútfull af andoxunarefnum.
Botn – Hráefni:
1½ bolli möndlumjöl
½ kókosmjöl
½ bolli haframjöl
1/3 tsk. Himalaya salt
3–4 msk. lífrænt kakóduft
2 msk. kókosolía
1 bolli döðlur
1/3 bolli saxaðar möndlur
1/3 bolli saxaðar pekanhnetur
¼ bolli vatn
½ msk. villiblómahunang
Aðferð:
Setjið saman öll hráefni í matvinnsluvél og blandið vel. Deiginu er svo þjappað í form eða á fat/kökudisk og geymt í frysti eða kæli þar til deigið er tilbúið.
Millilag – Hráefni:
1 msk. kókosolía
3 msk. hnetusmjör
5 msk. möndlusmjör
½ tsk. Himalaya salt
1 msk. villiblómahunang
nokkrir dropar af stevíu
Aðferð:
Setjið öll hráefni saman í matvinnsluvél og blandið vel. Millilagið er svo sett ofan á botninn og inn í kæli þar til tilbúið.
Krem – Hráefni:
½ msk. möndlusmjör
½ msk. hnetusmjör
1 msk. Dökkt agave
2 msk. lífrænt kakóduft
½ msk. kókosolía
Aðferð:
Setjið saman í pott og rétt velgið til að blanda saman. Hellið kreminu yfir kökuna og nokkrum saltflögum er að lokum dreift yfir.