„Sláum öll met og gerum þetta að mest lækaða súkkulaðieggi sögunnar!“ Á þessa leið er fyrsta Instagram-færsla sælgætisframleiðandans Góu. Við textann er mynd af páskaeggi án skrauts.
https://www.instagram.com/p/Btv384ogVV2/
Er þetta klárlega vísan í eggið Eugene sem braut næstum því internetið á aðeins níu dögum þegar mynd af egginu varð vinsælasta myndin á Instagram. Í dag hafa tæplega 53 milljónir manna líkað við myndina af Eugene og var helsta markmið eggsins að fá fleiri læk en þáverandi vinsælasta mynd Instagrams sem kom úr smiðju Kylie Jenner. Það tókst og rúmlega það.
https://www.instagram.com/p/BsOGulcndj-/
Síðar kom í ljós að hugmyndin á bak við eggið kom frá auglýsingastofu og hefur þann tilgang að hvetja fólk með samfélagsmiðlakvíða að leita sér hjálpar.
Nú leitast Góa eftir að feta í fótspor Eugene með fyrrnefndu páskaeggi, en þegar að þetta er skrifað hafa tæplega þrjú hundruð manns líkað við myndina af páskaegginu. Það er því langt í land enn.