Það vakti mikla athygli í dag þegar að myndband var sett á netið þar sem vopnaður vörður Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, fór inn í Downing-stræti 10 með poka af Krispy Kreme-kleinuhringjum. Má ætla að kleinuhringirnir hafi verið pantaðir inn á ríkisstjórnarfund sem stóð yfir í morgun, þar sem Theresa ku hafa ætlað að láta ríkisstjórn sína vita að hún ætlaði að berjast fram í rauðan dauðann fyrir Brexit-samningnum.
Allt lítur út fyrir að samningurinn verði felldur í kosningu í kvöld, en gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðsla hefjist um kvöldmatarleytið. Einnig er talið að vantraust verði lagt fram á ríkisstjórnina af Verkamannaflokknum ef samningurinn verður felldur.
Brexit-samkomulagið sem Theresa gerði við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur mætt mikilli andstöðu í breska þinginu, en Bretland gengur úr Evrópusambandinu þann 29. mars næstkomandi hvort sem verður búið að ganga frá samningnum eður ei.
Stóra spurning er hvort fyrrnefndir kleinuhringir nái að liðka fyrir samningum eða ekki, en ekki fylgir sögunni hvernig kleinuhringir voru í pokanum sem fengu vopnaða fylgd inn í Downing-stræti 10.