Breska blaðið The Sun birtir myndir innan úr heimili glamúrfyrirsætunnar Katie Price, en húsið er metið á tvær milljónir punda, rúmlega þrjú hundruð milljónir króna.
Eins og sést á meðfylgjandi myndum er Katie, sem áður gekk undir listamannsnafninu Jordan, afar hrifin af gráu og glimmeri.
Athygli vekur einnig að Katie hefur plantað málverki af sjálfri sér á besta stað í húsinu, svo enginn missi af því.
Það sem hefur hins vegar vakið mesta athygli eru eldhússtólarnir hennar sem eru alþaktir glimmeri. Ef marka má viðbrögð netverja eru stólarnir ekki allra, en Katie veit greinilega hvað hún vill.