Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay hefur gert það gott með þáttinn Kitchen Nightmares þar sem hann heimsækir veitingastaði sem þurfa á hjálp að halda.
Oftar en ekki eru veitingastaðirnir skítugir og maturinn fremur ógeðslegur. Nú hefur Gordon tekið saman myndband yfir ógeðslegustu eldhúsin í þáttunum, sem er alls ekki fyrir viðkvæma. Við þökkum bara fyrir að engin lykt finnst af myndböndum á YouTube.