Samfélagsmiðlastjörnuna Sólrúnu Diego þarf vart að kynna en það mætti halda að hún byggi yfir endalausri visku um hvernig á að gera lífið aðeins betra og heimilið fínna.
Í nýju myndbandi á Snapchat sýnir Sólrún fylgjendum sínum hvernig hún þrífur ísskápinn sinn og gerir það auðvitað af stakri snilld.
Þá sýnir Sólrún einnig ísskápinn tandurhreinan og búið að raða öllum matvörum heimilisins í hann.
Við vitum ekki með ykkur en þetta er einn skipulagðasti ísskápur sem við höfum á ævi okkar séð. Virkilega vel gert hjá Sólrúnu sem sýnir að þetta er hægt. Ísskápurinn getur verið í frábæru standi ef við leggjum okkur fram við að hafa hann fínan og höfum tíma til að dunda okkur.