Þeir sem eiga uppþvottavél falla eflaust margir í þá gryfju að skola allt leirtau vel og vandlega áður en það er sett í uppþvottavél. Þetta eru hins vegar mikil mistök, þó mikilvægt sé að henda öllum matarafgöngum áður en leirtau er sett í vélina.
Uppþvottalögur sem settur er í uppþvottavélar inniheldur ensím sem hönnuð eru til að festa sig við matarleifar og þannig vinna vinnuna sína. Ef leirtauið er hins vegar vel skolað nær þetta ensím ekki festu og er algjörlega tilgangslaust.
Nútíma uppþvottavélar eru ansi snjallar og hafa tekið miklum framförum síðustu ár. Þær eru til dæmis margar með skynjara sem skynja hve skítugt leirtauið er. Þannig meta vélarnar hve vel á að skrúbba leirtauið og því verða diskarnir ekkert hreinni ef þú skolar þá áður en þeir fara í vélina.
Með því að skola leirtau áður en það er sett í uppþvottavél sóar þú allt að 23 þúsund lítrum af vatni á hverju ári. Hugsaðu um það áður en þú skolar.
Í stuttu máli er þessi forskolun algjör tímasóun og þú ættir að hætta því strax í dag. Ef þú hættir að skola leirtau áður en það er sett í vél geturðu sparað þér allt að 230 klukkustundir, eða tíu heila daga, á ári. Það er nú ýmislegt hægt að gera við þann tíma.