„Það verða ekki málaferli út af þessu. Þetta verður nöldur og leiðindi sem birtast kannski í deilum síðarmeir eða eitthvað annað,“ segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, hagsmunafélags húseigenda, í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Rætt er við Sigurð vegna nágrannaerja vegna skötulyktar og hafa þessar deilur oft dregið dilk á eftir sér.
„Í húsi hérna við Grettisgötu var soðin skata svo duglega að það angaði öll sameignin fram á vor,“ segir Sigurður og bætir við að í því tiltekna húsi hafi þurft að skipta um teppi og mála uppá nýtt.
„Þetta er náttúrulega hryðjuverkaárás á þefskyn fólks og ætti hvergi að tíðkast.“
Sigurður hvetur fólk til að sýna tilitssemi en í alvarlegustu atvikunum gæti skötulyktin verið jafn slæm og ef íbúi í fjölbýli myndi brjóta eða bramla innanstokksmuni. Þá er hægt að reka fólk úr íbúðum sínum ef það fylgir ekki settum reglum.
„Meirihlutinn getur tekið ákvörðun um það að það megi ekki sjóða skötu í húsinu ef það veldur óþæginum eða ónæði. Ef einhver brýtur þær reglur eða það bann þá getur hann unnið sér til einhverrar óhelgi. Það er hægt að krefjast þess að hann flytji brott eða selji íbúð sína.“