Stórleikarinn Ryan Reynolds tilkynnti það í febrúar á þessu ári að hann hefði keypt ginfyrirtækið Aviation Gin. Síðan þá hefur hann boðið upp á sprenghlægilegar auglýsingar fyrir ginið, og sú nýjasta er engin undantekning.
„Fólk kemur upp að mér sí og æ og spyr hvað geri Aviation gin svona gómsætt? Oftast hleyp ég í burtu því fólk sem er ekki frægt hræðir mig, en hér er svarið,“ segir Ryan í meðfylgjandi auglýsingu og fer síðan á gamansaman hátt yfir ginferlið.
Í auglýsingunni segir hann til dæmis að bruggmeistarar vakni klukkan fjögur á morgnana til að hugleiða og að sítrusávextirnir sem notaðir eru til að blanda ginið séu vökvaðir með tárum leikarans.
Þessi auglýsing er skylduáhorf: