„Ég flýg bara heim til Noregs á Þorláksmessu. Næ kannski skötunni um kvöldið, það er haldið í hefðir,“ segir stórsöngvarinn Eiríkur Hauksson í viðtali við Sigga Gunnars á K100. Eiríkur er á landinu til þess að syngja á jólatónleikunum Jólin til þín sem verða haldnir víðs vegar um landið til jóla.
Eiríkur er búsettur í Noregi, eins og flestir vita, en í viðtali við Sigga segist hann eiginlega blanda íslenskum og norskum jólahefðum saman, þó þær íslensku séu alltaf sterkari.
„Norskar slæðast inn, helst fyrir jól,“ segir Eiríkur og minnist á norskan rétt í þessu samhengi.
„Þeir eru með rétt sem kallast fårikål, þeir eru duglegir í lambakjötinu eins og við, og það minnir svolítið á kjötsúpu og er ekki slæmt.“
Eiríkur verður svo ansi dulur þegar talið berst að jóladrykkjum.
„Það er alltaf eitthvað gott að drekka með jólamatnum, mjólk eða súrmjólk,“ segir Eiríkur en ef marka má viðbrögð Sigga liggur eitthvað meira þar að baki.
Sjá viðtalið í heild sinni hér: