Costco er besti vinnustaðurinn í flokki stórra fyrirtæki með fleiri en fimm hundruð starfsmenn. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem framkvæmd var af vefsíðunni Comparably.com og nær eingöngu yfir Bandaríkin.
Könnunin fór þannig fram að starfsmenn gáfu vinnuveitenda sínum einkunn nafnlaust á Comparably.com á tímabilinu 26. nóvember 2017 til 26. nóvember 2018. Enginn kostnaður fylgdi því að taka þátt í könnuninni, en að minnsta kosti fimmtíu starfsmenn Costco tóku þátt þar sem lágmarksfjöldi starfsmanna sem gáfu einkunn var fimmtíu.
Starfsmenn þurftu síðan að svara rúmlega fimmtíu spurningum um vinnustaðinn sinn, allt frá spurningum um fríðindi til yfirmanna.
Það má segja að Costco sé hástökkvari ársins á listanum þar sem fyrirtækið hoppar úr 35. sæti sem það vermdi í fyrra upp í það fyrsta. Þá stelur það toppsætinu frá Google, en leitarvélarbatteríið er nú í öðru sæti. Í þriðja sæti er fjarskiptafyrirtækið T-Mobile.
Meðal annarra fyrirtækja á listanum er Starbucks í tíunda sæti, Facebook í sextánda sæti, Microsoft í 22. sæti og LinkedIn í 25. sæti. Hér má sjá listann í heild sinni.