Konur eru líklegri en karlar til að segjast skoða næringarupplýsingar á matvöru, samkvæmt könnun MMR á því hvort landsmenn skoði næringarupplýsingar á pakkningum matvæla. Sögðust áttatíu prósent kvenna skoða þessar upplýsingar en 62 prósent karla.
Í heildina sögðust 71 prósent svarenda skoða næringarinnihald á pakkningum matvæla. Flestir skoða sykurinnihald, eða 61 prósent, 34 prósent skoða kolvetnamagn og 32 prósent orku eða hitaeiningar.
Svarendur í yngsta aldurshópi, eða 18 til 29 ára, voru líklegastir til að skoða upplýsingar um innihald kolvetna, orku eða hitaeininga og próteins. Svarendur í elsta aldurshópi, 68 ára og eldri, voru líklegri til að segjast skoða innihalds salts og mettaðrar fitu.
Háskólamenntaðir voru líklegri til að segjast skoða næringarinnihald heldur en þeir með framhalds- eða grunnskólamenntun. Stuðningsfólk Viðreisnar og Flokks fólksins var líklegast til að segjast skoða næringarupplýsingar á pakkningum matvæla en stuðningsfólk Miðflokksins líklegast til að segjast ekki skoða neinar næringarupplýsingar.
Könnun MMR var framkvæmd dagana 3. til 10. ágúst síðastliðinn. Heildarfjöldi svarenda var 957 einstaklingar, átján ára og eldri.