Kokkurinn Alexis deBoschnek tekur að sér vandasamt verkefni í nýju myndbandi frá Tasty – að elda þriggja rétta máltíð með því aðeins að nota kaffivél til matreiðslunnar.
Alexis ákveður að gera rækjurétt í forrétt, lax í aðalrétt og súkkulaðitrufflur í eftirrétt og er kostulegt að fylgjast með henni reyna að finna leiðir til að láta kaffivélina vinna með sér.
En tekst henni ætlunarverkið?