Það hlýtur að vera taugastrekkjandi að elda fyrir sjálfa Elísabetu Bretadrottningu, sérstaklega í ljósi þungra refsinga sem lágu við því að elda vondan mat fyrir kóngafólk á öldum áður. Í dag fá kokkarnir hins vegar bara orðsendingar frá drottningunni ef henni líkar ekki matseldin, og oftar en ekki bryddar hún uppá smá gríni í kaupbæti.
Í frétt í helgartímariti Daily Mail kemur fram að drottningin hafi eitt sinn fundið dauðan snigil í salatinu sínu. Hún ákvað þá að skrifa kokkinum skilaboð. Hún reif blaðsíðu úr sérstakri bók sem ætluð er fyrir athugasemdir drottningarinnar, skellti sniglinum á blaðsínu og skrifaði:
„Ég fann þetta í salatinu – viltu borða þetta?“
Í tímaritinu kemur einnig fram að drottningin hafi einfaldan smekk og að hún velji sér rétti úr bók sem er innbundin í leður. Í bókinni eru réttir sem konunglegi kokkurinn setur saman fyrir hana. Drottningin merkir við þá rétti sem henni líkar með blýanti en strikar yfir þá sem henni líst ekkert á. Stundum skrifar hún líka athugasemdir við réttina.
Elísabet vaknar klukkan 7.30 á hverjum morgni og fær sér bolla af Darjeeling-tei á meðan hún hlustar á úvarpsþáttinn Today á Radio 4. Síðan fær hún sér jógúrt eða morgunkorn og ristað brauð með marmelaði og gefur hundunum sínum stundum skorpuna.
Um klukkan fjögur síðdegis gæðir hún sér á samlokum án skorpu og í eftirrétt fær hún sér köku, til dæmis súkkulaði-, ávaxta- eða engiferköku.