David Cyril er 85 ára og nýjasta stjarnan á Instagram. Á síðunni sinni birtir hann myndir af matnum sem hann borðar, en hann ákvað að byrja að halda skrá yfir máltíðir sínar eftir að hann byrjaði í prógramminu Slimming World með það að markmiði að léttast. Síðan hann byrjaði í prógramminu hefur hann misst tæp sex kíló.
https://www.instagram.com/p/Bp5HAHkhDqc/
Ekki er langt síðan David byrjaði á Instagram, en hann birtir myndir af matnum sínum á hverjum einasta degi. Þá lætur hann fylgjendur sína einnig vita hvernig gangi að léttast og hvernig lífið er almennt.
https://www.instagram.com/p/Bp2RUAWBUoH/
Þá hvetur David fylgjendur sína til að vera góðir við hvorn annan og að njóta lífsins. Og þó David sé að reyna að léttast fær hann sér ýmislegt að borða – allt frá litríkum ávaxtasalötum til kjötkássa. Hann leyfir sér einnig sætindi inni á milli, en ástæðan fyrir því að hann breytti um lífsstíl var til að vera hraustur og léttari þegar hann gengur upp að altarinu með dóttur sína á næsta ári.
https://www.instagram.com/p/BpUi-x-hcNv/
https://www.instagram.com/p/BpMrWAshlxE/