36% fullorðinna borða skyndibita á hverjum degi, eða einn af hverjum þremur. Þetta kemur fram í bandarískri rannsókn um matarvenjur Bandaríkjamanna á árunum 2013 til 2016, en niðurstöður hennar voru nýlega birtar.
Í niðurstöðum kemur fram að yngra fólk borðar oftar skyndibita en sér eldra fólk. Tæplega 45% Bandaríkjamanna á aldrinum 20 til 39 borða skyndibita en aðeins 24% neytenda sextíu ára og eldri. Bandaríkjamenn sem eru svartir á hörund borða oftar skyndibita en hvítt fólk og Bandaríkjamenn af suður-amerískum uppruna.
Þeir efnameiri borða oftar skyndibita en þeir tekjulægri. 42% þeirra efnameiru borða skyndibita á hverjum degi, 36% þeirra sem hafa meðaltekjur og 31% þeirra sem hafa lágar tekjur.
Kynjahlutverk þeirra sem leggja sér skyndibita til munns er jafnt. Þeir sem borða skyndibita velja matinn í kvöldmat í 42% tilvika, í hádegismat í 43% tilvika og í morgunmat eða snarl í 22% tilvika.