Nú styttist í Hrekkjavökuna og margir Íslendingar farnir að undirbúa Hrekkjavökuteiti, þó þessi hátíð sé afskaplega ný af nálinni hér á landi.
Vefsíðan Bored Panda hefur tekið saman nokkra Hrekkjavökurétti sem taka ekki langan tíma í undirbúningi en eru heldur betur hræðilegir á að líta. Þessa rétti ættu flestir að geta gert, þó þeir séu ekkert sérstaklega sleipir í eldhúsinu.