Hleypt egg, eða „poached egg“ eru algjört lostæti, en margir víla það fyrir sér að búa þau til heima þar sem það felst ákveðinnar tækni.
Í meðfylgjandi myndbandi fer hins vegar Lena, aðstoðar matarritstjóri hjá Delish, yfir það frá A til Ö hvernig á að hleypa egg og ætti hver sem er að geta fylgt leiðbeiningum hennar með fullkomnum árangri.
Eins og sést í myndbandinu er mikilvægt að eggin séu við stofuhita áður en eldamennskan byrjar því ef kalt egg er sett í sjóðandi vatn getur eggjahvítan farið út um allt.