Lífið í eldhúsinu verður töluvert einfaldara með 9 bolla KitchenAid matvinnsluvélinni. Nýja matvinnsluvélin frá KitchenAid tekur 2,1 lítra og er fyrirferðarlítil, stílhrein og sérstaklega auðveld í notkun. Hönnunin er snúningsfrí, einsmellu samsetning er á skál og lokið er með krækju. Ótrúlega auðvelt er að setja hana upp, nota og hreinsa. Vélin hefur þétt lok, lekaþolna vinnuskál með lokuðu handfangi og læsingu, ávalar brúnir og slétta áferð sem gerir það auðvelt að þurrka af henni og hreinsa.
Aukahlutir beint í uppþvottavélina
KitchenAid matvinnsluvélinni fylgja ýmsir aukahlutir svo sem hnífur og deigblöð, tveir viðsnúanlegir fínir (2 mm), miðlungs (4 mm) sneiða-/rifdiskar og þykkari (6 mm) sneiðadiskar. Þannig má saxa hráefni í allar mögulegar stærðir með mismunandi grófleika eftir því hverju uppskriftin kallar eftir hverju sinni. Skál, lok og alla fylgihluti má setja í uppþvottavél sem auðveldar frágang svo um munar.
Hakkar, maukar, tætir og sneiðir
KitchenAid matvinnsluvélin ræður við ýmis hráefni og blandar þau vandlega og af nákvæmni. Upplýst LED-stýring sýnir þrjá auðvelda hraðavalkosti, þ.e. hratt, hægt og púls. Vélin þolir ýmsar stærðir og gerðir af bitum svo það er óþarfi að forsaxa hráefnin áður en þau fara í matvinnsluskálina. Hún hakkar, maukar, hnoðar, blandar, tætir og sneiðir auðveldlega, allt frá gúrkum til tómata, og osta og fleira. Einnig hnoðar hún pítsu- og brauðdeig með lítilli fyrirhöfn.
Sósu- og salatdressingargerðin verður að sama skapi ekkert mál með vélinni en hentugt fóðurrör með litlum troðara er á lokinu með litlu opi fyrir olíudropa.
Fyrirferðarlítil
KitchenAid matvinnsluvélin tekur lítið pláss og auðvelt er að geyma fylgihluti eins og hnífa, rifjárn og fleira í skálinni þegar þeir eru ekki í notkun. Einnig er hægt að koma snúrunni fyrir undir botni vélarinnar.
Vélin er fáanleg rauð eða svört í Raflandi og kostar 34.990 kr.