fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Þvottahúsið Fjöður: Þvær fyrir þig!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 12. febrúar 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þvottahúsið Fjöður ehf. er alhliða þvottahús, efnalaug og hreinsun sem hefur áratuga langa reynslu í þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga varðandi allan þvott. „Okkar helstu viðskipti í dag eru við hótel, veisluþjónustur og stofnanir, en slíkir aðilar þurfa að láta þvo umtalsvert magn af þvotti reglulega, svo sem dúka, sængurföt og fleira. Að sjálfsögðu þjónustum við einnig einstaklinga með þvott og hreinsun á líni og fatnaði. Að auki bjóðum við upp á leigu á líni og dúkum fyrir einstaklinga og fyrirtæki,“ segir Baldur G. Baldursson framkvæmdastjóri.

Nýjar sérhæfðar græjur

„Í byrjun voru aðeins þrír starfsmenn hjá Fjöður en í dag eru starfsmenn orðnir tólf talsins. Okkar þvottur fer í gegnum nýjustu græjurnar og hefur áherslan verið lögð á að taka inn öflug tæki til að vera í stakk búin til að sinna ört stækkandi hótel- og gistimarkaði. Okkar metnaður liggur í því að skila verkinu frá okkur hratt, örugglega og með fyrsta flokks frágangi,“ segir Baldur.

Hagkvæmur kostur fyrir hótel og Airbnb-gestgjafa

Undanfarin ár hefur meira borið á túrisma á veturna enda margir sem koma hingað vegna norðurljósanna. Ferðamennirnir gista á hótelum og í Airbnb-íbúðum og hefur þessi aukning í túrisma yfir vetrarmánuðina að sjálfsögðu bein áhrif á starfsemi þvottahúsanna. „Hjá Fjöður erum með hagkvæman kost fyrir hótel og Airbnb-gestgjafa sem léttir þeim vinnuna töluvert við gestaskipti. Við bjóðum upp á línleigu auk þess að vera með alhliða umsjón á þvotti. Við erum einnig með þjónustu þar sem við sækjum og skilum sé þess óskað. Öll þjónusta er sniðin að þörfum viðskiptavinarins varðandi afhendingu og frágang, allt lín straujað og brotið saman og kemur tilbúið beint á rúmið,“ segir Baldur. Sé um regluleg viðskipti að ræða gerir Fjöður föst verðtilboð.

Nánari upplýsingar má nálgast á fjodur.is á Facebook-síðunni Þvottahúsið Fjöður.
Fyrirtækið er staðsett að Ármúla 44, 108 Reykjavík.
Sími: 553-7979
Farsími: 846-4611
Netpóstur: fjodur@fjodur.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum