fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Undraefnið Prolan Medium heldur grillinu hreinu og ryðlausu

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 17. júní 2018 17:30

og eftir Prolan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta virkar mjög vel á grillið með því að nota Scaldia hreingerningarsvamp, sem flestir kannast við og er til á nær öllum heimilum, hann er oftast gulur öðrum megin og grænn hinum megin. Þú úðar yfir grillið og lætur standa í dálítinn tíma. Síðan nuddar þú með mýkri hlið svampsins yfir og þá fara burtu öll óhreinindi, ryðið og liturinn. Síðan er bara þurrkað yfir með hreinum klút. Þetta kemur í veg fyrir að grillið ryðgi yfirhöfuð, það falli á það og þess háttar. Takkarnir verða ekki fastir, en það er vandamál sem flestir grilleigendur hafa margir kynnst, því takkar á gasgrillum festast oft.“

Þetta segir Smári Hólm, umboðsaðili fyrir Prolan á Íslandi, en Prolan Medium er sannkallaði undraefni á útigrill og stuðlar að því að grillið heldur upphaflegu útliti sínu og er áfram prýði á veröndinni eða svölunum, í stað þess að verða að ljótum, ryðguðum klumpi eins og því miður er alltof algengt.

„Það er óhætt að segja að Prolan Medium sparar eigendum útigrilla mikil vandræði og vesen,“ segir Smári. Hann tekur hins vegar fram að Prolan Medium hentar ekki til að þrífa sjálfa grindina undir matnum, þar skal beita hefðbundnum aðferðum.

Smári Hólm er einn helsti sérfræðingur landsins í ryðvörnum og rekur ryðvarnaverkstæði að Rauðhellu 1 þar sem hann ryðver bíla eftir kúnstarinnar reglum. Í gegnum þetta starf kynntist hann undraefninu Prolan sem hefur gífurlega sterk forvarnaráhrif á þá fleti sem það er borið á.

Prolan-vörurnar eru fjölbreyttar, allt eftir því á hvers konar hluti þær eru notaðar, en eins og fyrr segir er varan sem notuð er á útigrillin Prolan Medium, sem er í úðaformi. Auðvelt er að úða vökvanum úr brúsanum og hann dreifist vel. Fyrir utan að henta vel á útigrillin virkar varan vel sem smurefni fyrir verkfæri og ýmsa hreyfanlega hluti.

Á vefsíðunni prolan.is er að finna ítarlegar upplýsingar um Prolan, sérstaklega undir efnisflokknum Vörur. Prolan er selt mjög víða en á prolan.is undir efnisflokknum Sölustaðir/Pantanir er ítarlegt yfirlit yfir alla söluaðila Prolan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum