fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Vogue: Rúmfræði fyrir hag unglingsins

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 23. febrúar 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vogue er gamalgróin húsgagnaverslun í hjarta Reykjavíkur og á Akureyri. „Við erum með mjög gott úrval af endingargóðum rúmdýnum og rúmbotnum á afar breiðu verðbili. Bæði bjóðum við upp á rúmdýnur og botna sem við flytjum inn en einnig sem við framleiðum sjálf. Þá getur viðskiptavinurinn sérvalið tau- og leðuráklæði á botna og rúmgafla með mismunandi áferð og lit eftir því sem passar inn í svefnherbergið. Hægt er að fá flotta og þægilega skápúða sem er skellt upp við höfðagaflinn þegar maður gleypir í sig góða bók. Einnig ganga þeir í staðinn fyrir höfðagafl og hægt er að fá þá í sama lit og áklæði og rúmbotninn,“ segir Kolbrún Birna Halldórsdóttir, rekstrar- og verslunarstjóri Vogue.

Stórsniðugur skápúði.

Eins gott að rúmið sé gott

Vogue býr yfir um 70 ára reynslu í rúmaframleiðslu. „Við leggjum mikið upp úr því að veita veiðskiptavinum okkar fyrsta flokks þjónustu þegar kemur að dýnu- og rúmbotnakaupum. Sölumenn okkar vita mjög um vörurnar sem við bjóðum upp á og veita meðal annars þá þjónustu að legugreina viðskiptavininn svo hann geti fjárfest í dýnu sem hentar honum fullkomlega. Ef við gerum ráð fyrir að manneskja fái um átta tíma svefn á sólarhring þá merkir það að við verjum um einum þriðja lífs okkar í rúminu. Þá er líka eins gott að það sé gæðarúm.“

Unglingurinn þarf góða dýnu

Það er gott að huga að því snemma að það þurfa allir gott rúm til þess að sofa í. „Við gleymum því oft að börn og unglingar þurfa líka góða dýnu. Það hefur einnig verið vísindalega sannað að unglingar þurfi oftast meira en átta tíma nætursvefn og því er það algert grundvallaratriði fyrir þá að rúmdýnan sé góð.“

 

Hvíldu þig í Loka og Freyju

Vogue framleiðir og hannar stórsniðugan svefnstól sem er tilvalinn í unglingaherbergið. „Við erum með tvær gerðir, þ.e. Loka og Freyju. Það er oft sem vinir fá að gista hjá unglingnum. Þegar svo ber undir er auðvelt að fletta svefnstólnum í sundur þannig að hann verður að þykkri dýnu á gólfinu sem er afar þægilegt að sofa á.“

Knúsaðu þig í svefn

„Önnur stórsniðug vara sem er frábær fyrir unglinginn, eða hvern sem er í raun, er svokallaður „body pillow“ eða knúsukoddi. Þetta er stór og langur púði sem er ótrúlega þægilegt að sofa með. Einnig er hægt að leggja hann upp við höfðagaflinn og sitja uppi við hann á meðan maður les,“ segir Kolbrún.

Vogue er staðsett að Síðumúla 30, Reykjavík og að Hofsbót 4, Akureyri.

Nánari upplýsingar á vogue.is

Sími: 533-3500 Rvk. og 462-3504 Ak.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum