„Vinsælast hjá okkur í dag er heilgrillað lambalæri og grillaður kjúklingur. Með þessu eru gjarnan ostagratín-kartöflur, salat með fetaosti, bearnaisesósa og rauðvínssósa, þetta er alveg tilvalið í fermingarveisluna,“ segir Svanur Hafsteinsson, eigandi Grillvagnsins, sem hefur boðið upp á veisluþjónustu síðan árið 1990.
„Allur undirbúningur fer fram í stóreldhúsi okkar í Mosfellsbæ, ekið er á veislustaðinn og klárað að elda í bílunum sem búnir eru fullkomnu eldhúsi.“ Starfsemin hófst með einum grillvagni en í dag hefur fyrirtækið yfir að ráða sjö misstórum grillbílum og tveimur grillvögnum, og veitir ekki af.
Alger snilld í fermingarveisluna
Svanur segir marga eiga erfitt með að trúa því að Grillvagninn bruni í hlað um hávetur og menn taki til við að grilla lamb úti í kuldanum en þetta er í boði í öllum veðrum. „Síðan förum við inn í hús og setjum upp borð þar sem við afgreiðum matinn en við komum alltaf með kokka í veisluna. Það setur skemmtilegan brag á veisluna og fólk hefur líka gaman af að sjá grillbílinn fyrir utan og okkur að störfum þar,“ segir Svanur.
Úrvals hamborgaraveisla
Úrvalið er fjölbreytt en áherslan er lögð á kjötrétti. „Í seinni tíð eru hamborgaraveislur orðnar mjög vinsælar í fermingum. Það er líka í boði að bæta við kjúklingalundum á spjóti og sumir vilja líka grillaðar pylsur með.“ Grillvagninn kappkostar að hafa eingöngu úrvals hráefni í hamborgurunum og öllum öðrum mat. „Maður lærði það fljótt í þessum bransa, að það margborgar sig að hafa topphráefni.“
Lamb og purusteik fyrir austan fjall
„Sumir kjósa að hafa nautalundir í veislunni sinni og það er auðvitað rosalega flott þó að það kosti sitt. Þá eru bakaðar kartöflur, bearnaisesósa og piparsósa. Eldra fólkið, þeir sem komnir eru yfir sjötugt, vill hins vegar oftar en ekki bara lamb.“ Grillvagninn býður líka upp á kalkún og margir velja saman lambalæri og kalkúnabringur í veisluna sína.
Grillvagninn þjónustar landsbyggðina líka og segir Svanur að matarsmekkur sé dálítið breytilegur eftir landsvæðum. „Ef við keyrum austur fyrir fjall er það yfirleitt alltaf lamb eða purusteik. Það er alveg magnað hvernig þetta breytist um leið og maður er kominn yfir Ölfusbrúna, þar er fólk lítið í fuglakjötinu.“
Við vöskum allt upp
„Við komum með alla diska og hnífapör rúlluð inn í hvíta servíettu og tökum allt óhreint með okkur. Það er því ekkert uppvask eftir veisluna og mörgum þykir afskaplega þægilegt að losna við það,“ segir Svanur.
Þjónusta Grillvagnsins hentar í alls konar veislur; brúðkaup, fermingar, stórafmæli og útskriftir.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni grillvagninn.is. Tekið er á móti fyrirspurnum og pöntunum í síma 898-3189 og á netfanginu grillvagninn@grillvagninn.is.