Mi Electric Scooter
Venjulegt verð 79.990 kr.
Tilvalin fermingargjöf fyrir þá sem eru alltaf á ferðinni. Rafmagnshlaupahjól úr sterku og léttu áli, sams konar því sem notað er í flugvélar. Öflugur rafmagnsmótor sem kemst allt að 25 km/klst hraða og 250 Wh rafhlöðu sem skilar allt að 30 km á sléttum jarðvegi. Auðvelt að brjóta saman og halda á því eða setja ofan í bakpoka. Tilvalið til að taka með í strætó og fara á milli í miðbænum!
Mi Band 3
Venjulegt verð 8.990 kr.
Fullkomin fermingargjöf fyrir öll fermingarbörn. Snjallúrið er nákvæmur skrefa- og hjartsláttarmælir sem gerir eigandanum auðvelt að fylgjast með líkamlegu ástandi sínu. Úrið skráir sjálfkrafa og sýnir lengd svefns, lengd djúpsvefns og hvort maður hafi vaknað eitthvað yfir nóttina. Stór skjár þar sem hægt er að lesa heil SMS-skilaboð. Ending á rafhlöðu góð og er úrið vatnshelt niður að 50 m dýpi. Bættu við aukaól fyrir úrið úr keðju eða leðri á aðeins 2.990 kr.
Mi Mix 3
Venjulegt verð 89.990 kr.
Sá allra nýjasti og allra flottasti. Fullkomin gjöf fyrir fermingarbarnið sem gerir strangar kröfur um gæði. Framhlið símans er einn stór skjár og frammyndavélin er falin í millirými símans sem hægt er að renna upp með einni fingursnertingu. Tvær myndavélar á bakhlið vinna saman og skila geggjuðum myndgæðum. Auk þess er myndavél á framhlið tvöföld með 24 MP linsu ásamt 2 MP dýptarskynjunarlinsu sem gerir notanda kleift að taka myndir í „portrait mode“. Síminn kemur með 128 GB geymslupláss og 6 GB vinnsluminni sem er meira en nóg fyrir flestalla farsímaleiki. Þú getur ekki klikkað ef þú gefur þennan í fermingargjöf!
Mi A2 Lite
Venjulegt verð 29.990 kr.
Virkilega öflugur og flottur snjallsími á verði sem erfitt er að toppa. Frábær gjöf fyrir þá sem taka mikið af myndum. Tvöfalda myndavélin að aftan býður upp á enn betri og skýrari myndir. Skjárinn þekur nær 80% framhliðar símans, rafhlaðan er stór og minnið er stækkanlegt með minniskorti.
MITU Mini RC drone
Venjulegt verð 12.990 kr.
Stórskemmtileg gjöf fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í drónamyndatökum. Ódýr og endingargóður dróni frá Xiaomi fyrir þá sem vilja notendavæna og skemmtilega upplifun. Hægt er að láta drónann fara heljarstökk til allra hliða, stilla á „battle mode“ og keppa við aðra dróna í skotbardaga eða leika sér að því að láta hann svífa upp í allt að 25 m hæð. Mögulegt er að setja hæðartakmörk á drónan frá 1–25 m hæð.
Mi Selfie Stick Tripod
Venjulegt verð 6.990 kr.
Er fermingarbarnið upprennandi ljósmyndari? Þá er þessi sjálfustöng fullkomin í pakkann. Sjálfustöngin er ekki nema 19 cm að lengd og útdraganleg í allt að 51 cm. Stöngina er einnig hægt að stilla sem þrífót. Þetta er alger staðalbúnaður fyrir þá sem elska að ferðast. Einnig fylgir innbyggð fjarstýring sem má nota til þess að taka myndir. Auðvelt að snúa festingunni í heilan hring og ná þannig öllum sjónarhornum.
Mi Iceland er vefverslun sem sendir frítt hvert á land sem er. Fleiri hugmyndir að flottum fermingargjöfum á mii.is