fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Taktu fyrsta skrefið með Verksýn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 17. febrúar 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérhæfing Verksýnar ehf. er á sviði viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem utan. Hjá fyrirtækinu starfa sérfræðingar með yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á þessu sviði. Fyrirtækið leggur áherslu á að búa yfir fagþekkingu, sem felst í að verkefnastjórar fyrirtækisins hafa flestir reynslu af störfum sem iðnmeistarar og er það ein af grunnstoðum í þekkingu fyrirtækisins.

„Við erum stolt af því að margir okkar starfsmanna hafa þennan mikilvæga bakgrunn, sem þeir hafa í mörgum tilvikum byggt ofan á með frekara námi. Við teljum þetta skapa okkur ákveðna sérstöðu og umfram allt nýtist þessi þekking viðskiptavinum okkar vel,“ segir Andri Már Reynisson hjá Verksýn.

„Stærsti hlutinn af okkar starfsemi felst í því að þjónusta húsfélög og aðra eigendur fasteigna með ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á eignum þeirra. Við störfum eftir gæðakerfi sem vottað er af Mannvirkjastofnun,“ segir Andri. „Við höfum einnig þróað gæðakerfi fyrir byggingarstjóra og iðnmeistara, sem við bjóðum til sölu, svo að við þekkjum einnig vel til þeirra gæðakerfa.“

Viðhaldsframkvæmdir við Fellsmúla 17–19. Álklæðning á útveggjum, endurnýjun og breyting á svalahandriðum, endurbætur á þaki, gluggaskipti, múrviðgerðir og málun.


Fyrsta skrefið er ástandsskoðun

„Fyrsta skrefið í okkar ferli er ástandsskoðun og í framhaldinu áætlanagerð. Það skiptir máli að þetta sé gert vel og vandlega. Mikilvægt er að þetta fyrsta skref sé tekið snemma. Núna er til dæmis góður tími til að hafa samband við okkur vegna ástandsskoðunar og þetta er að segja má sá tími ársins þar sem að við erum á fullu að vinna þessa undirbúningsvinnu fyrir framkvæmdir.

Stykkishólmskirkja. Árin 2015–2018 var gert við/skipt um öll þök byggingarinnar. Auk þess voru framkvæmdar umfangsmiklar múr- og steypuviðgerðir á kirkjunni og hún máluð. Gluggar yfir kór kirkjunnar voru svo endurnýjaðir á síðasta ári.

Eftir að ástandsskýrsla kemur út þarf viðskiptavinurinn að taka ákvörðun um næstu skref, sem tekur sinn tíma. Það er einnig best fyrir eigendur að gefa sér tíma í þá ákvarðanatöku, enda getur verið um töluverða fjárfestingu að ræða vegna viðgerða eða endurbóta á eldra húsnæði. Út frá reynslutölum er áætlað að verja þurfi um 1–2% af verðmæti fasteigna til að mæta eðlilegu viðhaldi á hverju ári, en sú viðhaldsþörf safnast upp og getur hæglega stigmagnast ef það er dregið of lengi að bregðast við henni,“  segir Andri.

„Stór hluti fasteigna á landinu er kominn á þann aldur að endingartími byggingarhluta fæst ekki framlengdur með t.d. málun og minni háttar viðhaldsaðgerðum. Tímabært verður því að horfa til endurnýjunar, t.d. á gluggum, þakklæðningu og öðrum hlutum.“

Fjöleignarhúsið Veghús 31. Hafði Verksýn umsjón og eftirlit með glugga- og múrviðgerðum á húsinu árið 2018, auk glerskipta og annars hefðbundins viðhalds á húsinu. Loks var það málað.


Útboð skila hagkvæmni

„Að lokinni ákvarðanatöku um framkvæmdarleið beinum við verkefnum okkar í útboð. Búin er til verðsamkeppni svo viðkomandi framkvæmd verði sem hagkvæmust fyrir eigendur. Við sinnum einnig umsjón og eftirliti með framkvæmdum, alveg frá upphafi og þar til kemur að lokaúttekt viðkomandi framkvæmda. Sú vinna er tímafrek og þarfnast yfirlegu.“

Eigendur vilja fá marktækar áætlanir

Iðulega heyrast sögusagnir um að kostnaður á hinum og þessum framkvæmdum hafi aukist langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Þótt kostnaðaraukning geti átt sínar skýringar í einhverjum tilvikum, er ekki þar með sagt að það eigi að taka þeim sem sjálfsögðum eða eðlilegum hlut.

Viðhaldsframkvæmdir við Rauðarárstíg 40–42. Endurnýjun flestra glugga hússins, gagngerar múrviðgerðir og endursteining, endurnýjun þaks, endurbygging þakkants, endurnýjun niðurfallsröra.

„Við hjá Verksýn skoðum fasteignir vel úr návígi og förum upp í stiga eða vinnulyftur til þess að komast yfir sem mest af ytra byrði hússins – og skoða það vel og vandlega. Einnig skoðum við innandyra samhliða eins og þörf er á. Það býður einfaldlega upp á ónákvæmar kostnaðaráætlanir að gera ekki nægilega nákvæma skoðun í upphafi og það er t.d. að okkar mati alls ekki nóg að „sjónskoða“ frá jörðu heilar húseignir og byggja áætlanir á því. Innanhússmetnaður okkar er að halda skekkjumörkum á framkvæmdakostnaði í ca. 5–10%, til eða frá, og hefur okkur tekist það að mestu leyti. Þá er það síðan alls ekki svo að framkvæmdir þurfi endilega að fara yfir áætlun, það er ekki síður algengt að þær endi undir áætlunum.“

Borgartún 6, öðru nafni Rúgbrauðsgerðin. Sumarið 2018 lauk framkvæmdum við umfangsmikil gluggaskipti á húsinu, bæði á bakhlið og austurgafli. Í framkvæmdinni voru settir ál/trégluggar í stað upprunalegra timburglugga. Hringlaga gluggar þessara hliða voru endurnýjaðir með álgluggum.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.verksyn.is

Verksýn ehf.

Síðumúla 1, 108 Reykjavík

517-6300 – verksyn@verksyn.is

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum