fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Svalalokun frá CoverIceland eykur verðmæti fasteignarinnar

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 16. febrúar 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cover Aluproducts hefur verið frumkvöðull í hönnun á glerbrautaprófílum síðan 1985 og er kerfið orðið vel þekkt um allan heim. Cover er finnskt gæðafyrirtæki og hafa Íslendingar tekið vel við sér. Á aðeins þremur árum hafa verið sett upp um yfir sex hundruð svalir og sólstofur um allt land. „Við erum með glerhandriða lausnir fyrir verktaka með möguleika fyrir svalalokun fyrir kaupendur íbúða. CoverIceland býður einnig upp á kaup á heilum kerfum á afar hagstæðu verði,“ segir Þuríður Kristín hjá CoverIceland.

 

Öruggar og snjólausar tröppur

„Það nýjasta hjá okkur eru svo rennihurðir og glerskálar með þaki. Einnig er hægt að fá stök þök svo sem yfir tröppur og skýli við útidyr. Þá þarf ekki að moka snjóinn úr tröppunum,“ segir Þuríður Kristín.

  • Svalalokunarkerfi frá CoverIceland eykur verðmæti fasteignarinnar án þess að hækka fasteignagjaldið.
  • Minnkar hitatap.
  • Útilokar rigningu og snjó á svölunum. Það þarf ekki að moka svalirnar!
  • Hægt að setja upp eigið gróðurhús á svölunum þar sem rækta má blóm og grænmeti.

CoverIceland býður upp á hefðbundin svalalokunarkerfi og einnig sérhönnuð kerfi fyrir aðstæður þar sem krafist er sérstaks styrkleika vegna vindálags.

 

Hentar íslenskum aðstæðum

Cover hentar sérstaklega vel við íslenskar aðstæður þar sem getur orðið ansi vindasamt, kalt og blautt eins og við höfum mörg hver fengið að reyna á eigin skinni bæði síðasta sumar og í vetur. Í dag gera byggingarreglur kröfur um sérstakt vindálagsþol svalahandriða og svalalokana við sérstakar landfræðilegar og ýmsar aðrar aðstæður því það hefur sýnt sig að hérlendis geta vindhviður orðið afar snarpar og sterkar við sérstakar aðstæður. CoverIceland býður meðal annars upp á handrið og svalalokunarkerfi sem er sérstaklega hannað og þróað fyrir íslenskt veðurfar og er sérstaklega vindþolið. Þá er glerið allt að 20 mm. og 15 mm. í svalalokum. Bilum milli glerja er lokað með PVC-þéttilista sem kemur í veg fyrir að snjór og vatn komist inn. Þannig býður CoverIceland 100% vatns- og vindþétt svalalokunarkerfi.

„Cover-svalalokunarkerfin veita skjól allan ársins hring og lengja til muna þetta stutta sumar sem okkur á norðurhveli jarðar býðst ár hvert. Þannig eykur Cover notagildi svalanna og jafnframt verðmæti fasteignarinnar,“ segir Þuríður Kristín.

 

Öryggi og hljóðeinangrun

Glerið sem notað er í Cover-kerfin er fjórum sinnum sterkara en venjulegt gler af sömu þykkt. „Öryggið felst í því að ef það brotnar þá molnar það í ótal litla mola í stað hvassra stærri brota í venjulegu gleri. Einnig geta glerjaðar svalir með einföldu gleri minnkað hávaða að utan um 7 desíbel. Og ef um er að ræða 2500 Herz-hávaða þá minnkar hljóðið um 13,5 desíbel,“ segir Þuríður.

Hágæða kerfi

Hjólabúnaðurinn er eitt af aðalsmerkjum Cover-glerbrautarkerfisins en hjólalegurnar gera glerbrautarkerfið afar þægilegt í notkun. Hjólin eru jafnstór að ofan og neðan sem gerir það að verkum að Cover-svalalokunarkerfið er skröltfrítt og glerflekinn er algjörlega njörvaður niður, sem er nauðsyn hér á landi. Glerflekarnir hanga ekki í efri braut heldur renna til á jafnstórum hjólum í efri og neðri braut sem tryggir jafnt álag og útilokar glamur og stirðleika.

Nánari upplýsingar má nálgast á www.covericeland.is
CoverIceland ehf.
Auðbrekka 10, 200 Kópavogur
(+354) 519-7771 – 777-7001
covericeland@covericeland.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum