Rafgæði ehf. er alhliða rafverktakafyrirtæki sem sinnir öllum raflögnum, hvort sem um er að ræða nýlagnir eða viðhald og/eða breytingar á raflögnum og allt sem því fylgir. Fyrirtækið hefur þjónað fyrirtækjum, stofnunum, húsfélögum og einstaklingum í fjölda ára.
Elvar Trausti Guðmundsson, eigandi Rafgæði ehf., hefur rekið fyrirtækið með góðum árangri í mörg ár. „Strax eftir meistaraprófið 1998 fór ég í sjálfstæðan rekstur og hef verið í því síðan í einhverri mynd,“ segir Elvar. Hjá fyrirtækinu starfa 11 manns í dag, reyndir rafvirkjar, rafvirkjanemar, sem og undirverktakar.
Alltaf nóg að gera
Við erum til dæmis að sjá um allt viðhald á raflögnum hjá Mosfellsbæ og svo erum við með stórt verkefni við Valsvöllinn á Hlíðarenda. Þetta er um tvö hundruð íbúða svæði. Það er alltaf nóg að gera hjá fyrirtæki líkt og okkar sem leggur upp með að veita góða og snögga þjónustu,“ segir Elvar.
Rafgæði ehf. er staðsett að Súluhöfða 27, 270 Mosfellsbæ.
Hafðu samband í gegnum netfang: etg@centrum.is og leggðu inn verkbeiðni.