Í Bíóhorni vikunnar er farið yfir það nýjasta og heitasta í kvikmyndahúsum um þessar mundir. Einnig er kynntur til leiks glæsilegur leikur sem þátturinn mun halda gangandi á næstu mánuðum.
Með þessum leik eru áhorfendur hvattir til að taka upp símann eða annað upptökutæki. Þá tekur við sú regla að endurleika senu sem þeim er kær, í allt að hálfa mínútu.
Við birtum síðan myndböndin í þættinum okkar og verður netkosning um þrjá sigurvegara undir lok mánaðarins.
Vinningshafarnir eiga von á veglegum pakka fyrir sig og sína en þeir verða kynntir á næstunni. Myndböndin má senda á netfangið biohornid@dv.is eða í gegnum DV Fókus á Facebook.
Guðni Einarsson fær orðið og skýrir þetta nánar… Vertu með!