fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

250 litir: Gott orðspor er gulli betra

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 15. júlí 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verktakafyrirtækið 250 litir ehf. sinnir öllum markaðnum þegar kemur að innan- og utanhússmálun, lökkun á útidyrum, epoxy-gólflökkun, pallamálun og mörgu fleira. „Ég hef rekið fyrirtækið frá árinu 2007 og er með marga góða starfsmenn sem hafa mikla reynslu og menntun á bak við sig. Fyrirtækið stækkar með hverju árinu sem líður enda byggjum við á góðu orðspori frá viðskiptavinum okkar. Við reddum öllu því sem þarf til þess að vinna verkin, hvort sem um er að ræða verktaka, vinnuvélar, tilskilin leyfi eða þess háttar,“ segir Stefán Örn hjá 250 litum.

„Við vinnum verk fyrir húsfélög, einstaklinga, fyrirtæki, öll verk sem snúa að viðhaldi. Við erum einnig mikið í að þjónusta íbúðir innanhúss; gólflökkun, lögun á rakaskemmdum og hvaðeina. Einnig sinnum við mikið nýbyggingum og höfum verið viðriðnir mjög stór og skemmtileg verkefni undanfarið. Nú síðast vorum við að klára stórt verk fyrir Bygg Ben ehf., um 52 íbúðir í Úlfarsfelli. Og um þessar mundir erum við að vinna verk fyrir Ístak hf., 244 stúdentaíbúðir við Sæmundargötu 21 í Reykjavík og Helgafellsskóla í Mosfellsbæ.“

Sinna öllum, stórum og smáum

250 litir ehf. er með ákveðinn fjölda fastra starfsmanna sem margir hverjir eru að sinna almennum markaði fyrir 250 liti. Einnig ræður fyrirtækið inn verktaka eftir því hversu stór verkefni það tekur að sér og miðað við þann tíma sem á að vinna verkið á. „Þannig getum við tekið að okkur stærri verkefni og minni, því þó svo við séum mikið í stærri verkefnum, þá sinnum við líka smærri verkefnum. Einn veggur er jafn mikilvægur og eitt hús,“ segir Stefán.

Ánægðir fastakúnnar

„Einnig höfum við þjónustað Ölgerðina til fjölda ára, utanhúss sem innan, hvort heldur er í skrifstofu- eða verksmiðjurýmum. Við höfum líkast til nýtt allar okkar verkaðferðir inni í þessu húsnæði enda eru rýmin sérstaklega fjölbreytt og notkunarleiðir þeirra mismunandi. Við höfum verið afar heppnir með samstarfsfélaga og kúnnahóp, enda hefur það sýnt sig að þegar fólk hefur leitað til okkar einu sinni þá kemur það aftur,“ segir Stefán.

Nánari upplýsingar má nálgast á litir.is auk þess sem þar má leggja inn umsókn um verðtilboð.

Facebook: 250 litir.

Miðvangur 57, 220 Hafnarfjörður

Netfang: litir@litir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum