fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Kombucha: Hollur og svalandi gosdrykkur með magnaða sögu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 18. janúar 2019 16:00

Manuel Plasencia Gutiérrez og Ragna Björk Guðbrandsdóttir ©Silja Rut Thorlacius

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarin ár hefur drykkurinn kombucha fest sig æ meira í sessi hjá íslenskum neytendum, og ekki að ástæðulausu. Kombucha er ljúffengur og hollur svaladrykkur, lítið sætur og með léttri kolsýru. Drykkurinn er án efa töluvert hollari valkostur en margir gosdrykkir sem eru í hillum matvöruverslana í dag, sem eru stútfullir af sykri og aukaefnum. „Kombucha Iceland er eins lítið sætt og við komumst upp með, enda er drykkurinn hollur að eðlisfari og engin ástæða til þess að sæta hann um of og gera hann því óhollan,“ segir Manuel Plasencia Gutiérrez, annar eigenda Kombucha Iceland og framkvæmdastjóri Kúbalúbra ehf.

Kombucha Iceland
Manuel Plasencia Gutiérrez.
©Silja Rut Thorlacius

Dularfullur heilsudrykkur með heillandi sögu

Fyrir þá sem ekki vita er kombucha stórmerkilegur svaladrykkur. Um er að ræða gerjaðan tedrykk sem kemur líklega frá Asíu til forna. „Helsta vísbendingin um uppruna drykkjarins er að hann er bruggaður úr telaufum sem eru upprunnin frá því landsvæði,“ segir Manuel. Fjölmargar frásagnir eru um að kombucha hafi hjálpað til við að laga ýmislega líkamlega og andlega kvilla. „Ég er fyrst og fremst vísindamaður og set ekki fram neinar staðhæfingar um heilsufarslegan ávinning kombucha, en get þó sagt að drykkurinn hefur hjálpað til við meltingarvandamál hjá mér persónulega. Kombucha er ógerilsneyddur, eins og við framleiðum hann, sem þýðir að í honum er að finna mikið af góðum gerlum sem hafa góð áhrif á þarmaflóruna. Einnig hefur kombucha jafn góð áhrif á líkamann og te, enda er drykkurinn í grunninn unninn úr te. Þetta er það eina sem ég get staðhæft um heilsuáhrif kombucha, því annað er óstaðfest af vísindasamfélaginu,“ segir Manuel.

Það er ekki seinna vænna að skipta út næringarsnauðu sykurgosinu fyrir hollt og svalandi kombucha. Kombucha Iceland kemur í mörgum spennandi bragðtegundum sem eru hver annarri betri, líkt og krækiberja, glóaldin, engifer, jarðarberja, rabarbara-vanillu, original, mintu og krækingifer.

Kombucha Iceland
©Silja Rut Thorlacius

Hvað er kombucha?

Kombucha Iceland byrjar, eins og áður sagði, á því að bruggað er lífrænt, sætt te. Næst er teið gerjað í allt að sex vikur með örveruþyrpingu sem kallast scoby (Symbiotic Colony of Bacteria and Yeast). Scoby étur upp sykurinn, vökvinn gerjast og kombucha drykkurinn verður til. Notaðir eru ferskir ávextir til að bragðbæta og bæta við næringargildið, síðan er hann gerjaður í annað sinn í flöskunni. Þá myndast létt kolsýra í drykknum. „Kombucha er súr drykkur sem minnir eilítið á edik. Sumir þurfa að venjast bragðinu fyrst, en þeir sem komast upp á bragðið elska kombucha til æviloka enda er drykkurinn svalandi og bragðgóður,“ segir Manuel.

 

Fjölskyldufyrirtæki

Kombucha Iceland er lítið fjölskyldufyrirtæki rekið af hjónunum Manuel Plasencia Gutierrez og Rögnu Björk Guðbrandsdóttur. „Þegar mikið liggur við hjálpa fjölskyldumeðlimir og vinir til. Við byrjuðum að framleiða kombucha fyrir tveimur árum og þá var eingöngu hægt að fá það á krana hjá fáeinum aðilum. Þá gat fólk komið með eigin ílát og fyllt á. Fyrir ári fórum við að selja kombucha í flöskum. Í dag er hægt að fá Kombucha Iceland á krana hjá Frú Laugu í Laugardal, Bændum í bænum, Solir Yoga og Mamma veit best í Kópavogi. Þetta er umhverfisvænn og ódýrari kostur. Fólk mætir með eigin flöskur og minnkar því sóun á umbúðum. Einnig gerum við margar tilraunir með bragðsamsetningu og koma þær tilraunir fyrst á krana. Ef það selst vel þá setjum við bragðið á flöskur og seljum í búðum. Við erum meðlimir í Kombucha Brewers International, sem eru alþjóðleg samtök kombucha-bruggara um allan heim. Okkar markmið er að gera kombucha aðgengilegra á Íslandi og í dag er hægt að fá vöruna okkar hjá fjölda aðila,“ segir Manuel.

Kombucha Iceland
Ragna og Manuel.
©Silja Rut Thorlacius

Hægt er að fá Kombucha Iceland hjá eftirfarandi endursöluaðilum:

Krónan, Melabúðin, Fjarðarkaup, Brauð og co, 10-11 á Laugavegi, Háma í Háskóla Íslands, Hreyfing, Fisk Kompaní á Akureyri, Boxid og einnig á veitingastöðum svo sem Lamb Street food, Gló, Hjá Höllu, Happ, Garðurinn, Kaffi Lækur, Bio Borgari, Luna Flórens, Reykjavík Roasters, Sjávarpakkhúsið, Bryggjan Brugghús, Brew Dog og Kaffibrennslan.

Nánari upplýsingar á kubalubra.is og facebooksíðunni Kombucha Iceland

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum