fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Reykjavík Meat: Loksins steikarstaður í fínni kantinum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Föstudaginn 7. september 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Okkur fannst vanta steikarstað í fínni kantinum í Reykjavík og ólíkt mörgum steikhúsum bjóðum við líka upp á aðra rétti en kjöt, til dæmis nokkra fiskrétti og svo grænmetis- og veganrétti,“ segir Almar Yngvi Garðarsson sem opnaði  veitingastaðinn Reykjavík Meat að Frakkastíg 8b á fimmtudagskvöldið ásamt félögum sínum, þeim Stefáni Magnússyni, Hönnu Kristínu Eyjólfsdóttur og Guðmundi Víði Víðissyni.

Með þessum stað gefst fólki tækifæri til að fara mjög fínt út að borða á viðráðanlegu verði. „Nautakjöt er áberandi á matseðlinum og kemur það víðs vegar að. Við erum til dæmis einn fyrsti staðurinn hér á landi til að bjóða upp á hið verðlaunaða sashi-nautakjöt sem hefur mikinn gæðastimpil. Fyrir utan nautakjöt erum við síðan til dæmis með túnfisk, lax, þorsk og lambakjöt á aðalréttaseðlinum og svo erum við með margs konar forrétti,“ segir Almar.

„Við höfum verið að prófa okkur áfram með fjölskyldu og vinum en núna er allt klárt og staðurinn hefur verið formlega opnaður. Sérstakt opnunartilboð verður í gildi um helgina og verður hægt að fá 3ja rétta máltíð og kokteil á 6.990 kr. Það er nauta-carpaccio í forrétt, nautalund í aðalrétt og stökkt súkkulaði í eftirrétt.“

Staðurinn er fremur stór og tekur 96 manns í sæti. Vínbúrið er fyrirferðarmikið og er hjarta staðarins. Gott úrval er af fínum vínum á viðráðanlegu verðu og starfsfólkið er faglært svo allir geta fengið sér það vín sem passar best við matinn.

Til að byrja með er kvöldopnun en eftir nokkrar vikur verður staðurinn líka opinn í hádeginu. Opið er virka daga frá 17.30 til 23 en eldhúsinu er lokað þá kl. 22. Um helgar verður opið frá 17.30 til 01 og eldhúsinu er lokað þá kl. 23.

Borðapantanir eru í síma 557-7665 og á netfanginu rvkmeat@rvkmeat.is. Sjá nánar á Facebooksíðunni RVK Meat og vefsíðunni rvkmeat.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum