fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Lífið er betra á hvolfi í Eríal Pole!

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 25. september 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eríal Pole hefur verið starfandi síðan í september 2012 og sérhæfir sig í ýmsum og fjölbreyttum afbrigðum súlufimi. Á allra síðustu árum hefur þessi líkamsrækt orðið þekktari og vinsælli og virðist komin til að vera. Við gefum Evu Rut hjá Eríal Pole orðið:

„Pole fitness hefur hingað til verið aðal áherslan hjá okkur en undanfarið höfum við aukið áherslu á fleiri tegundir loftfimleika.

Öll námskeiðin okkar eiga það sameiginlegt að reyna í senn á jafnvægi, styrk, samhæfingu og liðleika og okkur langar einnig til þess að koma því á framfæri að það er algengur misskilningur að þetta séu aðeins tímar fyrir konur. Hjá okkur æfir fólk á öllum aldri, bara til gamans og fyrir sig sjálft. Engin pressa er á að keppa eða sýna og hver og einn fer upp um erfiðleikastig á eigin tíma og forsendum.

Lyran, sem er einnig þekkt sem aerial hoop eða loftfimleikahringir, er t.d. sífellt að verða vinsælli. Til að byrja með vorum við bara með einn lyru-hóp sem samanstóð af pole fitness-nemendunum okkar sem langaði að brjóta upp vikuna sína og taka einstaka tíma en núna er kominn stór hópur sem sem æfir eingöngu lyru sem er nú kennd á þremur erfiðleikastigum. Það er ótrúlega gaman að sjá þessa þróun og aldrei að vita nema lyra verði jafn vinsæl og pole á næstunni.

Lyra á rætur sínar að rekja til sirkuslista og í byrjendatímunum eru kenndar aðferðir við að komast inn í hringinn, einfaldar stöður og styrktaræfingar sem hægt er að gera með og í hringnum. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma og ekki er nauðsynlegt að hafa neinn grunn í öðrum íþróttum eða dansi til að byrja að æfa.

Aerial hammock eru glænýir og spennandi tímar sem hófust í september og hafa strax slegið í gegn, en í þessum tímum munum við velta, rúlla, lyfta, snúast á hvolf og takast á flug. Æfingarnar eru framkvæmdar í mjúkri silkilykkju og sameinast áhrif úr sirkuslistum, jóga og dansi í skemmtilegri líkamsrækt. Hér er lykkjan notuð sem loftfimleikaáhald með áherslu á að búa til fallegar stöður, læra að vefja sig inn í efnið, klifra og æfa samsetningar og flæði.

Önnur nýjung sem við munum byrja með í október er pole parkour sem er sambland af parkour og freerunning við pole fitness. Pole parkour byggir á ýmsum stökkum og lendingum af og á súlunni ásamt flæði og kennir fólki að yfirstíga hindranir. Notast er við hin ýmsu pole fitness-grip til þess að aðlaga heljarstökk og aðrar aflmiklar hreyfingar að súlunni.

Við mælum líka mikið með flex-tímunum okkar. Það hefur verið mjög mikil vöntun á liðleikatímum þar sem er einmitt verið að einblína á að komast í splitt og spígat og brú. Það eru auðvitað jógatímar á flestum ræktarstöðvum en þeir eru ekki að einblína á þessi stóru markmið eins og splittið, sem flestir fullorðnir láta sig bara dreyma um. Fólk sem lyftir mikið þarf til dæmis nauðsynlega á góðum axlateygjum og bakteygjum að halda sem flexið bíður einmitt upp á.

Komdu og upplifðu skemmtilega og krefjandi tíma sem koma þér í frábært form.

Hvetjandi andrúmsloft og fjölbreytt námskeið. Lífið er betra á hvolfi í Eríal Pole!“

Á myndunum eru Davíð Már, pole parkour-þjálfari, og Lilja Salóme, lyru- og hammock-þjálfari.

www.erialpole.is

Auk námskeiða þá var Erial Pole einnig að opna meðferðarstofu í Fascial Stretch Therapy sem er sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Hægt er að lesa sér til um það á vefsíðunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum