fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Vöðvasmiðjan: Einstaklingsbundin þjálfun og langtímaárangur

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 21. september 2018 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vöðvasmiðjan er fyrirtæki einkaþjálfaranna Erlendar Guðmundssonar og Helenu Pereira. Bæði eru  vel menntuð og þrautreynd í líkamsræktarfræðunum og bjóða upp á einstaklingsbundna þjálfun þar sem þau hjálpa fólki við að ná markmiðum sínum og gera líkamsrækt að lífsstíl til frambúðar. Einnig reka þau vefverslun með líkamsræktartæki á síðunni vodvasmidjan.is.

Erlendur og Helena þjálfa bæði í nokkrum stöðvum World Class. Helena sérhæfir sig í þjálfun kvenna og er þessa dagana að fara af stað með hópeinkaþjálfun sem ber heitið Sjálfstraust & Hraust. Í þeirri þjálfun er mikið lagt upp úr heilbrigðri nálgun á hreyfingu og mataræði ásamt því að vinna að breyttu hugarfari. Á Instagram-síðu sinni www.instagram.com/the_helenap talar hún mikið um jákvæða sjálfsmynd og hennar viðhorf til heilsu. En Helena vill hjálpa konum að koma jafnvægi á líf sitt, að vera við góða heilsu og að líða vel bæði andlega og líkamlega.

Erlendur sérhæfir sig í þjálfun karlmanna á besta aldri, svona upp úr 35 ára. „Þetta eru gjarnan menn í annasömum störfum með fjölskyldu og þeir eiga í erfiðleikum með að koma reglu á mataræði og finna líkamsræktinni stað í sinni rútínu. Ég hef sérhæft mig í að hjálpa þessum mönnum að komast í sitt besta form og þá er mikilvægt að beita einstaklingsbundinni nálgun því það sem hentar einum hentar ekki endilega öðrum.“

Erlendur Guðmundsson

Hvað er það sem knýr fólk áfram?

Aðspurður segir Erlendur að meirihluti fólks sem leitar til þeirra vilji losna við aukakíló. Mörg dæmi séu þó einnig um að fólk sem ekki glímir við ofþyngd hafi samband og vilji hreinlega bæta almennt form, styrkja sig og líða betur. „Annars leggjum við mikla áherslu á að fitutap og þyngdartap er ekki endilega það sama og við einblínum ekki á töluna á vigtinni. Við erum líka mikið að vinna með hugarfarið hjá fólki og að komast inn fyrir skelina. Hverju vilt þú í rauninni breyta? Við viljum komast inn fyrir þessar yfirborðskenndu ástæður sem byggja á því hvernig samfélagið segir að þú eigir að vera. Af hverju viltu þetta? Er það af því það er orðið erfitt fyrir þig að leika við börnin þín? Finnst þér miður að hafa ekki meiri orku í vinnunni og daglegu lífi? Viltu verða fyrirmynd? Oft eru verkir að hrjá fólk og það stendur frammi fyrir því að það er farið að glíma við heilsuleysi og afleiðingar hreyfingarleysis langt fyrir aldur fram. Þegar við komumst að þessum djúpu ástæðum hjá fólki þá smellur þetta oft saman og hjólin fara að snúast,“ segir Erlendur.

Helena Pereira

Mikið aðhald og stuðningur

Vöðvasmiðjan býður upp á fjarþjálfun, einkaþjálfun og hópþjálfun. Einkaþjálfunin veitir nánasta og besta aðhaldið en þjálfun í litlum hópum getur líka verið afar hvetjandi. Í fjarþjálfuninni, sem sumir velja vegna erfiðrar staðsetningar eða einfaldlega af fjárhagástæðum, kappkosta Erlendur og Helena að veita mikið aðhald og stuðning þar sem þau eru í reglulegu sambandi við skjólstæðinga sína og hjálpa þeim að ná tökum á heilbrigðum venjum. „Okkar fólk nær árangri vegna þess að við vinnum með því í að finna lausnir sem henta því og eigum gott samtal vikulega hið minnsta þar sem við förum yfir stöðuna, hvernig gekk í vikunni sem leið og hvort við þurfum að breyta einhverju fyrir framhaldið, við erum ekki að krefja neinn um fullkomnun heldur að við gerum okkar allra besta til að bæta okkur viku fyrir viku.“

Erlendur og Helena eru ekki hrifin af skyndilausnum og öfgum í mataræði heldur telja mikilvægt að reyna að innleiða langtímaumbætur á mataræði skjólstæðinga sinna. „Við fræðum fólk um mat og næringu þannig að það verði meðvitaðra um hvað það þarf að borða mikið miðað við hreyfingu sína, hvað er í því sem það er að borða og svo framvegis. Aðhaldið sem það fær leiðir síðan til þess að það velur fremur betri kostinn en þann verri þegar það stendur frammi fyrir ákvörðunum um næringu.“

Erlendur og Helena leggja metnað sinn í að gera annasömu fólki kleift að flétta líkamsrækt inn í líf sitt, öðlast aukið heilbrigði og lífsánægju og ná smám saman markmiðum sínum í þeim efnum.

Ítarlegar og afar fróðlegar upplýsingar um starfsemi Vöðvasmiðjunnar er að finna á vefsíðunni vodasmidjan.is og á Instagram-síðunni www.instagram.com/coach_erlendur.  Fyrsta skrefið í átt að bættum lífsstíl gæti verið að fara inn á síðuna og kanna það sem í boði er. Gangi þér vel!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum