fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Siggi Hlö er mættur í ferðabransann: Fyrirtækjaferðir eru í góðum höndum hjá Visitor

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Laugardaginn 1. september 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrirtæki sem vilja fara með starfsfólk sitt til útlanda ættu að hafa samband við okkur mjög snemma í ferlinu því þessi fargjaldafrumskógur er ótrúlegur. Fargjöld hækka daglega fram að brottfarardegi og versti óvinur skemmtinefnda sem eru að spá í flugfargjöld og gistingar eru allar þessar leitarvélar sem sýna þér hagstætt verð en þegar þú ert kannski með 30–80 manna hóp er bara allt annað í gangi,“ segir Sigurður Hlöðversson, Siggi Hlö, hjá Visitor, en fyrirtækið sérhæfir sig meðal annars í árshátíðarferðum og öðrum hvataferðum fyrirtækja til útlanda.

Visitor hefur áralanga reynslu af bókunum og skipulagningu hópferða og er beintengt við bókunarkerfi sem bjóða upp á hagstæðar ferðir. Visitor veitir persónulega þjónustu til jafnt lítilla sem stórra aðila og léttir mjög álagi og streitu af skemmtinefndum fyrirtækja sem oft standa í ströngu til að láta hópferðina verða sem fullkomnasta.

Siggi Hlö er nú nýlega genginn til liðs við Visitor eftir 20 ár í auglýsingabransanum auk þess sem allir þekkja hann sem glaðbeittan og vinsælan útvarpsmann. Siggi hefur auk þess verið fararstjóri í hópferðum um allan heim í 30 ár og hefur gífurlega reynslu sem fararstjóri í árshátíðarferðum og skemmtikraftur í slíkum ferðum. Siggi kemur því með frábæra reynslu og þekkingu af hópferðum inn í Visitor. En þar er einnig mikil reynsla og þekking til staðar á ferðamálum því ferðaskrifstofan hefur starfað í 10 ár og eigendur hennar verið í ferðabransanum í aldarfjórðung.

Meðal annarra áhugaverðra ferða hjá Visitor eru fótboltaferðir sem eru gífurlega vinsælar: „Við erum aðallega með ferðir til borganna Manchester og Liverpool og erum með fastsettar ferðir á nokkra mjög spennandi leiki í vetur,“ segir Siggi en meðal leikja sem boðið verður upp á ferðir á eru Liverpool-Man Utd. og Man Utd.-Arsenal. Fótboltaferðirnar eru með íslenskri fararstjórn.

Ítarlegar upplýsingar er að finna á vefsíðunni visitor.is og það er ekki seinna vænna að hafa samband við Visitor og skipuleggja ógleymanlega ferð með hópnum þínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum