fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Sælandsgarðar: Núna er tíminn fyrir hellulögn en trjáklippingar og trjáfellingar eru handan við hornið

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 3. ágúst 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert lát hefur verið á verkefnum hjá Sælandsgörðum í sumar en vaskir starfsmenn fyrirtækisins hafa verið að hanna garða, hreinsa beð, slá og helluleggja í allt sumar. Hellulögn er nú í algleymingi hjá fyrirtækinu en hægt er að vinna við hana allan ársins hring ef vel viðrar. Oft getur verið nauðsynlegt að rífa upp og endurnýja gamla hellulögn í heimkeyrslum, á bílastæðum og göngustígum, og leggja á ný. Oft þarf líka að endurnýja gamlar hleðslur eða gera nýjar, hvort heldur er með forsteyptum einingum eða náttúrulegu grjóti. Hellur og náttúrugrjót geta verið skemmtileg lausn í garðinum til að minnka garðslátt og gera ásýnd garðsins léttari, nútímalegri og flottari. Þarna þarf síðan líka að koma við sögu ráðgjöf og undirbúningur á borð við jarðvegsskipti og uppsetningu snjóbræðslukerfa eftir því sem við á og óskað er eftir.

Beðahreinsun, jarðvegsskipti í görðum og garðsláttur eru enn í fullum gangi enda útlit fyrir að nú sé að viðra betur seinni hluta sumarsins. Það er mikilvægt að ljúka slíkum verkefnum fyrir haustið.

Mikill uppgangur hjá Sælandsgörðum

Það eru feðgarnir Eiríkur Ómar Sæland og Kolbeinn Sæland sem reka Sælandsgarða. Eiríkur er garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins og sótti sér auk þess frekari menntun í faginu til Noregs og Danmerkur. Eiríkur hefur rekið garðaþjónustu sína í tíu ár. Kolbeinn, sonur Eiríks, er menntaður skrúðgarðyrkjufræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands og hefur komið inn í reksturinn með föður sínum á síðustu árum.

Sælandsgarðar þjónusta allt í senn, heimili einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki. Mikill uppgangur hefur verið í starfseminni undanfarið og hin vaska sveit Sælandsgarða hefur tekist á við mörg stór og viðamikil verkefni með glæsilegum hætti.

Sælandsgarðar taka að sér stór og smá verkefni allan ársins hring. Starfsmenn fyrirtækisins mæta á svæðið, skoða umfang verksins, gera áætlanir um lausn með húseigendum og leysa í kjölfarið verkið af fagmennsku, fljótt og örugglega, á hagkvæman hátt. Eiríkur og hans menn eru með öll nauðsynleg tæki og búnað í garðaþjónustu og hellulögn – eru fagmenn sem leggja áherslu á persónulega þjónustu og vandaða vinnu.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 848-1723. Sjá einnig Facebook-síðuna Sælandsgarðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum