fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Hótel Flatey: Í tímalausri fegurð og kyrrð

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. júlí 2018 08:00

Mynd: Friðgeir Helgason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það vita kannski fáir að ef þú ert að ferðast með bílinn þinn með ferjunni Baldri frá Stykkishólmi til Vestfjarða eða frá Vestfjörðum til Stykkishólms þá geturðu beðið starfsfólkið í Baldri um að aka bílnum þínum í land á áfangastaðnum og geyma fyrir þig lyklana. Þú getur hins vegar farið úr ferjunni í Flatey og gist eina nótt þar. Þessi þjónusta um borð í ferjunni kostar ekkert aukalega,“ segir Heiðrún Jensdóttir, hótelstjóri á Hótel Flatey.

Það eru margar góðar ástæður til að dveljast í Flatey og þetta er ein þeirra. Önnur er sú að Hótel Flatey býður 20% afslátt af gistingu á völdum nóttum í sumar.

Að sögn Heiðrúnar eru erlendir gestir á Hótel Flatey í dálitlum meirihluta en hótelið er þó allvinsælt meðal Íslendinga. „Það er líka algengara að erlendir ferðamenn gisti hér í meira en eina nótt þar sem Flatey er oft inná ferðaplaninu þeirra, meðan Íslendingar gista oftast í eina nótt,“ segir Heiðrún.

Mynd: Friðgeir Helgason

Ferskleikinn í fyrirrúmi

Á Hótel Flatey er rekinn framúrskarandi veitingastaður sem er öllum opinn, hvort sem þeir gista á hótelinu eða ekki. „Það er kjörið að stoppa einn dag í Flatey, fara í gönguferð og njóta fegurðarinnar og borða síðan dásamlegan mat á veitingastaðnum,“ segir Heiðrún, en mikil áhersla er lögð á ferskt hráefni:

„Við reynum að hafa hráefnið sem mest frá staðnum eða nærliggjandi stöðum. Við erum með fjölbreyttan matseðil. Á matseðlinum er m.a. þorskur, lamb, kavíar og bláskel. Kavíarinn okkar er grásleppukavíar sem sjómenn hérna í eyjunni sjá okkur fyrir og gerist ekki ferskari; bláskelin kemur alveg fersk hingað beint frá Stykkishólmi. Þorskurinn og silungurinn koma hins vegar frá Vestfjörðum. Hér er allt unnið frá grunni, við bökum okkar eigið súrdeigsbrauð og kokkurinn býr meira að segja til kryddið í fiskréttina úr þara héðan úr fjörunni.“

Kyrrð og fegurð – einstakur staður

„Hérna getur fólk upplifað tímaleysi og hlaðið batteríin í kyrrð og fegurð,“ segir Heiðrún og bendir á einstakt fuglalífið sem er einstaklega gaman að skoða. „Svo eru það öll gömlu, fallegu og vel uppgerðu húsin hérna sem eru sannkallað augnayndi. Hérna er elsta bókasafn landsins sem gaman er að skoða og kirkjan er fallega skreytt með málverkum eftir Baltasar Samper. Flatey er einstakur staður.“

Mynd: Friðgeir Helgason

 

Þá spillir ekki fyrir að reglulega eru skemmtilegar uppákomur á hótelinu. Fyrr í sumar hafa skemmt þar gestum jassistarnir Tómas R. Einarsson og Ómar Guðjónsson. Þá tróð rapparinn Emmsje Gauti upp á Hótel Flatey fyrir skömmu. Á næstunni spilar hljómsveitin Ske og í ágústmánuði er von á Gunnari Þórðarsyni. Um verslunarmannahelgina mun hin ástæla söngkona, Sigríður Thorlacius, troða upp með hljómsveit sinni.

Bókunarsími á Hótel Flatey er 555 7788. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni hotelflatey.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum